Töflur og einingar í bréfum
Kröfutafla, samantekt, undirskrift og aðrar einingar sem fyllast út sjálfkrafa
Written By Kjartan Valur Þórðarson
Last updated 19 days ago
Einingar (widgets) eru hlutar bréfs sem Vergo fyllir út sjálfkrafa, t.d. tafla yfir kröfurnar eða undirskrift lögmanns. Þú setur einingu inn með „Setja inn widget“ í tækjastiku ritilsins, eða með ⊕ á tómri línu. Hver eining getur aðeins komið einu sinni fyrir í hverju bréfi.

Stillingar eininga
Efst á hverri einingu er stika með:
Handfangi til að draga eininguna á annan stað í bréfinu.
Bil (pt): bil fyrir ofan og neðan eininguna.
Tannhjóli sem opnar stillingar einingarinnar.
Eyða til að fjarlægja eininguna.
Í töflum getur þú valið þykkt línanna í „Línur (pt)“: „Engar“, 0,25, 0,5 eða 1.
Einingarnar
Kröfutafla
Allar kröfur innheimtukröfunnar með gjalddaga og höfuðstól. Í stillingunum getur þú falið dálkana „Lýsing“, „Vextir“, „Innborgun“ og „Eftirstöðvar“. Taflan prentast ekki ef engar kröfur eru á innheimtukröfunni.
Kostnaðartafla
Allur kostnaður innheimtukröfunnar með dagsetningu, upphæð, vöxtum og stöðu. Ef fleiri en ein tegund kostnaðar er til, t.d. áfallinn og útlagður kostnaður, fær hver tegund sína töflu með samtölu. Taflan prentast ekki ef enginn kostnaður er skráður.
Samantekt
Staða kröfunnar í heild. Undir „Sýna“ velur þú:
Heildarstöðu (sjálfgefið): höfuðstóll, vextir, kostnaður, innborganir og eftirstöðvar.
Sundurliðað: höfuðstóll, vextir, innborganir, hver kostnaðarliður án VSK, vextir af kostnaði, virðisaukaskattur og samtala.
Með „Sundurliðað“ getur þú einnig valið „Kostnaður bréfsins neðan við samtölu“. Þá kemur kostnaðurinn sem bréfið sjálft bókar á eftir línunni „Samtals“ og síðan „Heildarsamtala“:
Enginn: allur kostnaður er í samtölunni.
Útlagður: útlagður kostnaður bréfsins kemur á eftir samtölunni, t.d. fjárnámsgjald í aðfararbeiðni.
Allur: allur kostnaður bréfsins kemur á eftir samtölunni, t.d. kostnaður kröfulýsingar.
Undir „Jöfnun“ velur þú hvort samantektin er vinstra megin, fyrir miðju eða hægra megin.
Skuldaratafla
Nafn, kennitala og heimilisfang skuldaranna sem eru valdir í bréfaglugganum. Ef bréfið inniheldur skuldaratöflu spyr bréfaglugginn um skuldara.
Skjalatafla
Númeraður listi yfir framlögð skjöl, eins og þau eru skráð í bréfaglugganum. Ef bréfið inniheldur skjalatöflu verður að skrá framlögð skjöl þegar bréfið er búið til.
Aðilar
Fyrirsögn, kröfuhafi og skuldari eða skuldarar, hver í sinni línu. Í stillingunum getur þú breytt fyrirsögninni (sjálfgefið „Aðilar málsins eru:“), stærð hennar og textunum á undan kröfuhafa og skuldurum.
Dómkröfur
Kröfurnar, vextir af þeim og innborganir í texta, eins og í dómkröfum stefnu. Hver krafa er sett fram með fjárhæð og vaxtatímabilum. Í stillingunum getur þú slökkt á lýsingu vaxtategunda og á innborgunum.
Lýsing heimildarskjals
Tölusettur listi yfir skuldabréfið: skuldaskjal, aðila og upphaflega skilmála. Línurnar eru stillanlegar. Hver lína hefur heiti og gildi, og gildið getur innihaldið færibreytur, t.d. {BondIssueDate}. Lína fellur út ef allar færibreytur hennar eru tómar, t.d. „Veðsali“ ef enginn veðsali er á kröfunni. Með „Endurstilla“ fara línurnar aftur í sjálfgefið.
Einingin prentast aðeins á innheimtukröfum sem eru skuldabréf. Í forskoðun sést hún aðeins ef bréfið er stillt á „Skuldabréf“ í „Notað fyrir“.
Undirskrift
Tegund undirskriftar: „Tóm lína“ til að skrifa undir, eða „Mynd“ af undirskrift. Klipptu myndina þétt að undirskriftinni. Mælt er með hvítum eða engum bakgrunni.
Staðsetning: vinstra megin, fyrir miðju eða hægra megin.
Texti undir undirskrift: t.d.
{EmployeeName}í einni línu og „Lögmaður“ í þeirri næstu. Þú getur notað færibreytur.
Athugaðu: mynd af undirskrift tilheyrir sniðmátinu. Hún er því sú sama, sama hver býr bréfið til.
Mynd
Lógó, stimpill eða önnur mynd. Þú setur hana inn með „Setja inn mynd“ í tækjastikunni og velur breidd og staðsetningu. Leyfðar eru JPG, PNG, GIF og BMP myndir, að hámarki 2 MB. Mynd má einnig setja inn í töflu, t.d. lógó við hliðina á texta í hausnum.
Einingar skilagreina
Einingar sem byrja á „Skilagrein:“ eru aðeins í boði í sniðmátum skilagreina, á flipanum „Skilagreinar“.
Langar töflur og síðuskil
Kröfutafla, kostnaðartafla, skuldaratafla og skjalatafla halda áfram á næstu síðu, línu fyrir línu, ef þær komast ekki fyrir. Dálkaheiti og fyrstu tvær línurnar haldast saman, og síðustu tvær línurnar líka.
Tafla með fjórum línum eða færri færist heil á næstu síðu ef hún kemst ekki fyrir.
Samantekt, Aðilar, Undirskrift og Mynd eru aldrei klofnar. Ef þær komast ekki fyrir færast þær heilar á næstu síðu.
Fyrirsögn rétt á undan töflu fylgir töflunni.
Ef þú vilt að eitthvað byrji á nýrri síðu setur þú inn síðuskil með Ctrl+Enter.
Was this helpful?
More in Bréfsniðmát
Hvernig virka bréfsniðmát?Færibreytur í bréfumStill need help? Ask the team