Að stofna innheimtukröfu
Almenn krafa eða skuldabréf, aðilar, staða og innheimtustig
Written By Kjartan Valur Þórðarson
Last updated 18 days ago
Innheimtukrafa heldur utan um eina innheimtu: kröfurnar, kostnað, innborganir, bréf og skilagreinar. Hún tilheyrir alltaf máli í Vergo.
Að stofna innheimtukröfu
Í aðalvalmyndinni vinstra megin velur þú „Innheimta“ › „Innheimtukröfur“. Smelltu á „Stofna“ efst á síðunni og veldu:
Stofna almenna kröfu: kröfurnar eru skráðar ein og ein, t.d. reikningar.
Stofna skuldabréf: kröfurnar verða til úr skilmálum skuldabréfs. Sjá greinina Skuldabréf.
Ekki er hægt að breyta tegundinni eftir á.
Fylltu út reitina (sjá hér að neðan) og smelltu á „Vista“. Síða nýju innheimtukröfunnar opnast.
Ef þú ert með dómsorð, dómkröfur eða réttarsátt getur þú látið gervigreind stofna innheimtukröfuna. Sjá greinina Stofna með gervigreind.
Reitirnir
Heiti: nafn innheimtukröfunnar.
Mál: málið sem innheimtukrafan tilheyrir. Þegar þú velur mál verður umbjóðandi málsins kröfuhafi og gagnaðili þess aðalskuldari, ef þeir reitir eru tómir.
Staða: „Í innheimtu“, „Greitt“ eða „Afskrifað“.
Innheimtustig: „Fruminnheimta“, „Milliinnheimta“ eða „Löginnheimta“. Ræður því hvaða bréf bjóðast.
Dagatalning: hvernig dagar eru taldir þegar vextir eru reiknaðir. Sjá greinina Kröfur, vextir og vaxtatöflur.
Uppgjörsdagur: „Til dagsins í dag“ eða „Festa dagsetningu“. Vextir reiknast til þessa dags.
Aðilar
Kröfuhafi: einn á hverri innheimtukröfu.
Skuldarar: einn eða fleiri. Bættu við með „Bæta við skuldara“.
Ábyrgðarmenn, fyrirsvarsmenn og veðsalar: bættu þeim við með „+ Ábyrgðarmaður“, „+ Fyrirsvarsmaður“ og „+ Veðsali“.
Í hverjum lista er fyrsti valkosturinn „Bæta við nýjum tengilið“ ef aðilinn er ekki þegar til í Vergo. Sami aðili getur haft fleiri en eitt hlutverk, t.d. verið bæði skuldari og veðsali.
Aðalskuldari: einn skuldaranna er aðalskuldari. Sá fyrsti sem er skráður verður það sjálfkrafa, en þú getur valið annan með hnappnum við nafn hans. Aðalskuldarinn er sjálfgefinn viðtakandi bréfa og birtist á listanum yfir innheimtukröfur.
Aðilar í bréfum
Í bréfaglugganum velur þú viðtakanda bréfsins úr öllum aðilum nema kröfuhafa. Aðalskuldarinn er sjálfgefinn.
Í bréfum sem nefna fleiri en einn skuldara velur þú hvaða skuldarar koma fram.
Ábyrgðarmenn, fyrirsvarsmenn og veðsalar koma fram í bréfum sem nota þá, t.d. í lýsingu skuldabréfs.
Staða og innheimtustig
Staðan og innheimtustigið eru stillt í glugganum sem opnast með „Breyta“ á spjaldinu „Grunnupplýsingar“. Breytingar á þeim eru skráðar í „Tímalína“.
Staða er aðeins merking. Hún breytist ekki sjálfkrafa, t.d. verður innheimtukrafa ekki „Greitt“ þótt eftirstöðvar séu 0. Listinn yfir innheimtukröfur sýnir sjálfgefið aðeins kröfur sem eru „Í innheimtu“.
Innheimtustig ræður hvaða bréf bjóðast á innheimtukröfunni:
Fruminnheimta: bréf fruminnheimtu.
Milliinnheimta: bréf fruminnheimtu og milliinnheimtu.
Löginnheimta: öll bréf.
Síða innheimtukröfunnar
Á síðu innheimtukröfunnar eru spjöld fyrir hvern hluta hennar, í þessari röð:
Grunnupplýsingar: aðilar, staða, innheimtustig og aðrar stillingar. „Breyta“ opnar sama glugga og þegar innheimtukrafan var stofnuð.
Kröfur eða Skuldabréf og Vaxtatöflur: sjá greinarnar Kröfur, vextir og vaxtatöflur og Skuldabréf.
Innborganir og Afskriftir: sjá greinina Innborganir og afskriftir.
Áfallinn kostnaður, Útlagður kostnaður og Kostnaður kröfuhafa: sjá greinina Kostnaður og gjaldskrá.
Bréf og Skilagreinar: sjá greinarnar Að búa til bréf og Skilagreinar.
Vaxtaútreikningar: hvernig vextir hverrar kröfu eru reiknaðir.
Hægra megin eru „Samtölur“, staða innheimtukröfunnar í heild, og „Tímalína“ með því sem hefur verið gert. Efst á síðunni getur þú prentað yfirlit eða sótt það sem PDF, Word eða Excel skjal, með eða án sundurliðunar vaxta.
Gott að vita
Listinn yfir innheimtukröfur er sjálfgefið síaður á mál sem þú berð ábyrgð á. Til að sjá innheimtukröfur á málum samstarfsfólks þarftu að hreinsa síuna „Ábyrgðarmaður“.
Einnig er hægt að stofna innheimtukröfu af síðu máls. Þá er málið þegar valið.
Was this helpful?
More in Innheimta
SkuldabréfKostnaður og gjaldskráInnborganir og afskriftirAð búa til bréfStill need help? Ask the team