Skip to main content
Reikningagerð

Að skipta færslum á milli viðskiptavina máls

Hvernig þú skiptir tímaskráningum, föstum gjöldum og útlögðum kostnaði á milli viðskiptavina máls, þannig að hver fær sinn reikning

Written By Kjartan Valur Þórðarson

Last updated 2 days ago

Þegar mál hefur fleiri en einn viðskiptavin – til dæmis fleiri en einn brotaþola eða erfingja – geturðu skipt færslum málsins á milli þeirra. Færsla sem varðar tvo viðskiptavini verður þá að tveimur jöfnum hlutum, einum á hvorn, og hver viðskiptavinur fær reikning fyrir sinn hlut.

Þetta á við um allar færslutegundir: tímaskráningu, fast gjald og útlagðan kostnað.

Áður en þú byrjar: viðskiptavinir málsins

Glugginn skiptir færslum á þá viðskiptavini sem skráðir eru á málinu. Vanti viðskiptavin bætir þú honum við á málinu sjálfu (Breyta máli → Viðskiptavinir). Einn þeirra er aðalviðskiptavinur málsins.

Hver færsla er skráð á einn viðskiptavin málsins. Sjálfgefið er hún á aðalviðskiptavininum. Þegar málið hefur fleiri en einn viðskiptavin birtist reiturinn Viðskiptavinur í skráningarglugganum (undir Sýna öll svæði), og þar geturðu sett staka færslu beint á annan viðskiptavin.

Að skipta færslum

Skref 1: Velja færslurnar

Opnaðu málið og farðu í Málskostnaður, eða farðu í Tímaskráning. Hakaðu við færslurnar sem á að skipta og smelltu á Skipta í tækjastikunni. Þú getur líka hægrismellt og valið Skipta á viðskiptavini.

  • Allar valdar færslur verða að vera á sama máli.

  • Ekki er hægt að skipta færslum sem búið er að reikningsfæra. Ráð: Veldu Nei í síunni Reikningsfært.

Þá opnast glugginn Skipta færslum á viðskiptavini.

Skref 2: Haka við þá sem hver færsla varðar

Efst í glugganum sérðu viðskiptavini málsins, merkta með bókstöfum (A, B, C …). Í töflunni fyrir neðan er einn dálkur fyrir hvern viðskiptavin. Hakaðu við þá viðskiptavini sem hver færsla varðar. Færslunni er skipt í jafna hluta á milli þeirra sem hakað er við, og dálkurinn Hver hluti sýnir skiptinguna, t.d. 2 × 0,50.

  • Færsla sem aldrei hefur verið skipt byrjar með hak við alla viðskiptavini.

  • Færsla sem er þegar hluti af fyrri skiptingu, eða er skráð á annan viðskiptavin en aðalviðskiptavininn, byrjar aðeins með hak við sinn viðskiptavin. Þannig er henni ekki skipt aftur fyrir slysni.

  • Hver færsla verður að hafa hak við að minnsta kosti einn viðskiptavin.

Hakaðu aðeins við einn viðskiptavin til að setja færslu í heilu lagi á hann án þess að skipta henni.

Skref 3: Velja greiðanda

Undir Greiðandi velur þú hverjir fá reikningana:

  • Óbreyttur – færslurnar halda þeim greiðanda sem þær hafa. Færsla án sérstaks greiðanda er reikningsfærð á þann viðskiptavin sem fær hlutinn.

  • Hver viðskiptavinur greiðir sinn hlut – hver hluti fer á reikning þess viðskiptavinar sem hann tilheyrir.

  • Annar greiðandi – allir hlutar fara á þann greiðanda sem þú velur, t.d. tryggingafélag.

Skref 4: Yfirfara niðurstöðuna og vista

Neðst sérðu spjald fyrir hvern viðskiptavin með tímunum sem falla á hann og hverjum reikningurinn verður gefinn út á („Reikningur á …“). Smelltu á Skipta færslum til að vista.

Hvar er útlagði kostnaðurinn? Spjöldin í niðurstöðunni telja aðeins tímaskráningar (klst). Föstum gjöldum og útlögðum kostnaði er samt skipt á sama hátt: þau fá sama verð en helming magnsins hvor (ef tveir skipta), og hver hluti fer á reikning síns viðskiptavinar. Línan „Reikningur á …“ tekur mið af öllum hlutum, kostnaður meðtalinn.

Hvað gerist þegar þú vistar?

Hver færsla sem skipt er verður að jafnmörgum færslum og hakað var við. Lýsing, dagsetning og verð haldast, en magni og „til greiðslu“ er deilt jafnt á hlutana. Upphæðin er því sú sama í heild og áður. Hlutarnir eru tengdir saman sem ein skipting.

Í reikningagerðinni

Þegar þú ferð í reikningagerð fyrir málið skiptast færslurnar á greiðendur sína, og einn reikningur verður til fyrir hvern greiðanda. Hver viðskiptavinur fær þannig reikning fyrir sinn hlut. Það sem ekki er reikningsfært stendur eftir á málinu sem útistandandi.

Ef viðskiptavinum málsins er breytt

  • Skipt um aðalviðskiptavin: Hlutar sem voru á gamla aðalviðskiptavininum fylgja honum áfram. Færslur sem ekki hafði verið skipt fylgja nýja aðalviðskiptavininum.

  • Viðskiptavinur fjarlægður af máli: Óreikningsfærðar færslur hans fara aftur á aðalviðskiptavininn. Reikningsfærðar færslur breytast ekki.

Sjá einnig Að breyta greiðanda á færslum og Að breyta um greiðanda á máli.