Hvernig virka bréfsniðmát?
Stöðluð bréf og eigin bréf, stillingar, ritillinn og útgáfusaga
Written By Kjartan Valur Þórðarson
Last updated 19 days ago
Bréfsniðmát eru fyrirmyndir að bréfunum sem þú býrð til á innheimtukröfu, t.d. innheimtubréfi, greiðsluáskorun og stefnu. Þegar bréf er búið til fyllir Vergo sniðmátið út með upplýsingum innheimtukröfunnar og býr til PDF skjal.
Breytingar á sniðmáti ná aðeins til bréfa sem eru búin til eftir að breytingin er vistuð. Bréf sem þegar hafa verið búin til breytast ekki.
Hvar eru bréfsniðmátin?
Í aðalvalmyndinni vinstra megin velur þú „Innheimta“ › „Stillingar“ og síðan flipann „Bréfsniðmát“. Sniðmátin eru flokkuð eftir innheimtustigi: Fruminnheimta, Milliinnheimta og Löginnheimta. Undir heiti hvers bréfs sjást gjaldliðirnir sem það bókar.
Veldu bréf á listanum til að skoða það. Það birtist eins og það kemur út sem PDF, fyllt út með tilbúnum upplýsingum. Skuldarinn heitir t.d. Jón Jónsson og kröfuhafinn Sýnidæmi ehf. Upplýsingar um stofuna og þig eru hins vegar raunverulegar.
Sniðmát skilagreina eru á flipanum „Skilagreinar“ og þeim er breytt á sama hátt.
Stöðluð bréf og eigin bréf
Stöðluð bréf: Vergo leggur til eitt bréf af hverri tegund. Þau fylgja útliti Vergo og fá sjálfkrafa þær endurbætur sem Vergo gerir á þeim.
Sérsniðið: ef þú breytir útliti staðlaðs bréfs, eða „Reitir og fylgiskjöl“, er það merkt „Sérsniðið“. Stofan notar þá sína útgáfu og fær ekki lengur breytingar Vergo á útliti bréfsins.
Eigið bréf: þú býrð til eigið bréf með því að afrita bréf sem fyrir er, með „Afrita sem nýtt bréf“. Afritið fær texta, reiti, gjaldliði, frest og notkun upprunalega bréfsins og er merkt „Eigið bréf“. Það er sjálfstætt og breytist ekki þótt upprunalega bréfið breytist.
Ekki er hægt að búa til autt bréf. Afritaðu það bréf sem er líkast því sem þú vilt fá. Afritið er á sama innheimtustigi og bréfið sem var afritað.
Stillingar bréfs
Hnappurinn „Stillingar“ opnar tvo glugga.
Almennar stillingar:
Nafn: heiti bréfsins eins og það birtist á listum.
Innheimtustig: sést en er ekki hægt að breyta.
Notað fyrir: „Allar kröfur“, „Kröfur án skuldabréfs“ eða „Skuldabréf“. Ræður því á hvaða innheimtukröfum bréfið býðst.
Frestur (dagar): sjálfgefinn frestur í bréfaglugganum. Hann prentast í bréfinu með
{LetterDeadlineDays}.Gjaldliðir: liðir úr gjaldskránni sem bréfið bókar sem kostnað þegar það er búið til.
Reitir og fylgiskjöl: hvað bréfaglugginn spyr um og hvaða skjöl fylgja bréfinu. Sjá greinina Eigin reitir og Reitir og fylgiskjöl.
Að breyta útliti bréfs
Veldu bréfið og smelltu á „Breyta sniðmáti“.
Breyttu bréfinu vinstra megin. Forskoðunin hægra megin uppfærist um sekúndu eftir að þú hættir að skrifa og sýnir bréfið eins og það kemur út.
Skrifaðu stutta athugasemd í „Athugasemd við útgáfu“ ef þú vilt, t.d. hverju var breytt.
Smelltu á „Vista“.
Athugaðu: ef þú lokar glugganum, eða ferð af síðunni, án þess að vista spyr Vergo hvort þú viljir vista breytingarnar, loka án þess að vista eða halda áfram að breyta.
Hlutar ritilsins
Skjalastillingar: leturgerð, leturstærð, jöfnun texta og spássíur. Þær gilda fyrir allt bréfið, líka töflur.
Haus: prentast efst á hverri síðu. Ef kveikt er á „Aðeins á fyrstu síðu“ prentast hann aðeins á fyrstu síðunni, eins og bréfsefni. Lógó stofunnar setur þú inn með „Setja inn lógó fyrirtækis“.
Neðanmál: prentast neðst á hverri síðu. Síðunúmer,
{PageNumber}og{TotalPages}, virka aðeins í haus og neðanmáli.Meginmál: texti bréfsins með fyrirsögnum, listum, töflum og myndum. Með Ctrl+Enter setur þú inn síðuskil, svo það sem á eftir kemur byrjar á nýrri síðu.
Að setja inn efni
Bæta við breytu: setur inn færibreytu, t.d. nafn skuldara. Sjá greinina Færibreytur í bréfum.
Setja inn widget: setur inn töflu eða einingu sem fyllist út sjálfkrafa, t.d. kröfutöflu eða undirskrift. Sjá greinina Töflur og einingar í bréfum.
Töflur í texta: „Tafla með römmum“ er venjuleg tafla. „Uppbyggingartafla“ hefur ósýnilega ramma og hentar t.d. til að hafa texta eða mynd hlið við hlið.
Á tómri línu birtist ⊕ sem opnar sömu valmöguleika. Þú getur líka hægrismellt í textann.
Útgáfusaga
Í hvert sinn sem bréf er vistað verður til ný útgáfa. Smelltu á „Útgáfusaga“ til að sjá allar útgáfur, hver vistaði þær og hvenær, ásamt athugasemd.
Veldu útgáfu til að sjá hana sem PDF.
„Endurheimta“ setur útgáfuna aftur í notkun. Núverandi staða er fyrst vistuð sem ný útgáfa, svo alltaf er hægt að fara til baka.
Á stöðluðu bréfi er efst „Kerfissniðmát“, bréfið eins og Vergo hefur það núna.
Að endurstilla
„Endurstilla sniðmát“ (neðst í ritlinum) og „Endurstilla á kerfissniðmát“ (í útgáfusögu): útlit bréfsins fer aftur í útlit Vergo. Nafn, gjaldliðir og frestur halda sér, en „Reitir og fylgiskjöl“ fara líka aftur í sjálfgefið.
„Endurstilla allt á sjálfgefið“ (neðst í „Almennar stillingar“): allt fer aftur í sjálfgefið, líka nafn, gjaldliðir, frestur og notkun.
Útgáfusagan helst í báðum tilvikum, svo þú getur endurheimt fyrri útgáfu ef þörf krefur.
Að eyða bréfi
Aðeins er hægt að eyða eigin bréfum. Smelltu á „Eyða bréfi“ neðst í „Almennar stillingar“. Bréf sem þegar hafa verið búin til úr sniðmátinu halda sér. Stöðluðum bréfum Vergo er ekki hægt að eyða.
Was this helpful?
More in Bréfsniðmát
Eigin reitir og Reitir og fylgiskjölTöflur og einingar í bréfumStill need help? Ask the team