Skip to main content
Tengingar við önnur kerfi

Skaðabótakröfur í Vergo með API

Hvernig kerfið ykkar flytur skaðabótakröfur inn í Vergo, stofnar nýjar kröfur þar og sækir útreikning þeirra.

Written By Kjartan Valur Þórðarson

Last updated 11 days ago

Með API-inum getur kerfið ykkar stofnað skaðabótakröfur í Vergo og sótt útreikning þeirra. Hér er farið yfir hvernig kröfur sem þið eigið nú þegar eru fluttar inn, hvernig málakerfið ykkar stofnar nýjar kröfur og hvernig sótt er hvað stendur eftir á þeim. Nákvæm lýsing á hverri vefþjónustu og hverju svæði er í API-skjöluninni: https://api.vergo.is/docs/injury-claims

Áður en þið byrjið

  1. Fáið kerfisnotanda og API-aðgang eins og lýst er í greininni Búa til API-aðgang. Vergo setur kerfisnotandann upp með þeim réttindum sem köllin hér þurfa.

  2. Sækið access token með POST /oauth/token. Sendið grant_type, client_id og client_secret sem form (application/x-www-form-urlencoded) í meginmáli kallsins, ekki í Authorization: Basic haus eins og mörg OAuth-söfn gera sjálfgefið. Tokenið gildir í klukkustund; sækið nýtt þegar það rennur út. Sendið það sem Authorization: Bearer {access_token} og auðkenni fyrirtækisins í vTenantId hausnum í hverju kalli.

  3. Prófið tenginguna fyrst í prófunarumhverfi eða á prófunarfyrirtæki áður en hún snertir raungögn. Hafið samband við Vergo til að fá aðgang.

Flutningur krafna sem þegar eru til

Fyrir hverja kröfu í ykkar kerfi:

  1. Finnið eða stofnið tjónþolann. Flettið honum upp eftir kennitölu með GET /contacts?ssn=1234567890. Ef hann finnst ekki, stofnið hann með POST /contacts. Vergo kemur ekki í veg fyrir að tveir tengiliðir hafi sömu kennitölu, svo flettið alltaf upp fyrst.

  2. Athugið hvort krafan sé þegar komin. Flettið henni upp eftir auðkenninu í ykkar kerfi með POST /compensations/injury-claims/list og { "externalId": "T-2019-0042", "pageSize": 1 }.

  3. Stofnið kröfuna með POST /compensations/injury-claims, eða uppfærið hana með id hennar ef hún er þegar til. Uppfærsla kemur í stað allrar kröfunnar og það sem er sleppt er fjarlægt, svo keyrið flutninginn aðeins aftur áður en fólk fer að vinna í kröfunum í Vergo.

  4. Farið yfir útkomuna í kröfulistanum (POST /compensations/injury-claims/list). Krafa sem ekki er hægt að reikna, til dæmis vegna þess að slysdag eða bótahlutfall vantar, er með tómar samtölur (totalClaimAmount). Krafa án uppgjörsdags er opin og reiknuð til dagsins í dag.

Dæmi um kröfu í flutningi

{
  "injuryClaim": {
    "externalId": "T-2019-0042",
    "createdDate": "2019-03-04T10:30:00Z",
    "clientId": "Xb4kPq",
    "status": "Settled",
    "dateOfBirth": "1985-06-12",
    "injuryDate": "2019-02-20",
    "stabilizationDate": "2019-08-20",
    "penaltyInterestStartDate": "2019-11-01",
    "settlementDate": "2020-01-15",
    "compensationPercentage": 100,
    "calcTemporaryEarningsLoss": true,
    "calcPainAndSuffering": true,
    "calcPermanentImpairment": true,
    "calcPermanentDisability": false,
    "temporaryEarningsLoss": {
      "claimId": 1,
      "amount": 850000,
      "deductions": [],
      "includeInLegalCostCalculation": false
    },
    "painAndSuffering": {
      "claimId": 2,
      "sickDays": 40,
      "bedriddenDays": 3,
      "usePeriods": false,
      "deductions": [],
      "includeInLegalCostCalculation": false
    },
    "permanentImpairment": {
      "claimId": 3,
      "impairmentPoints": 8,
      "specificIncreasePercentage": 0,
      "deductions": [],
      "includeInLegalCostCalculation": false
    },
    "payments": [
      {
        "id": 1,
        "amount": 500000,
        "paymentDate": "2019-12-01",
        "type": "InterestFirst",
        "allocationStrategy": "HighestInterestFirst",
        "description": "Innborgun á tímabundið atvinnutjón",
        "allocationRules": [
          { "targetType": "Claim", "claimId": 1, "amount": null }
        ]
      }
    ]
  }
}

Tenging við málakerfið ykkar

Þegar kröfurnar eru komnar í Vergo getur kerfið ykkar haldið áfram að stofna nýjar kröfur þar og sýnt hvað stendur eftir á hverri:

  1. Þegar mál er stofnað í ykkar kerfi, finnið eða stofnið tjónþolann eins og í flutningnum, flettið kröfunni upp eftir externalId (tjónsnúmerinu ykkar) og stofnið hana ef hún er ekki til, með externalId, clientId og því sem þið vitið, til dæmis injuryDate. Starfsfólk ykkar setur kröfuna svo upp í Vergo.

  2. Til að sýna hvað stendur eftir á kröfu, til dæmis þegar ýtt er á takka í málinu, flettið kröfunni upp eftir externalId og sækið útreikning hennar (sjá Útreikningur kröfu hér að neðan).

Dæmi um nýja kröfu

{
  "injuryClaim": {
    "externalId": "TJON-1234",
    "clientId": "Xb4kPq",
    "dateOfBirth": "1992-01-01",
    "injuryDate": "2018-01-01",
    "compensationPercentage": 100
  }
}
  • Stofnið kröfur en uppfærið þær ekki. Þegar krafa hefur verið sett upp í Vergo heldur Vergo utan um hana. Uppfærsla kemur í stað allrar kröfunnar, svo uppfærsla með aðeins þeim svæðum sem kerfið ykkar þekkir fjarlægir þá bótaliði, innborganir og lögmannskostnað sem settir voru upp í Vergo.

  • Notið lítil módel. Sendið og lesið aðeins þau svæði sem þið notið, til dæmis módel fyrir nýja kröfu með svæðunum í dæminu hér að ofan og módel fyrir útreikning með totalClaimAmount og validationError. Þá þarf síður að breyta kerfinu ykkar þegar Vergo breytir einhverju sem þið notið ekki. Svör geta fengið ný svæði, svo hunsið þau sem þið þekkið ekki.

Gott að vita

  • externalId er auðkenni kröfunnar í ykkar kerfi, mest 50 stafir. Aðeins ein krafa hjá fyrirtækinu getur haft það, svo krafa er aldrei stofnuð tvisvar: önnur krafa með sama auðkenni fær svarið 409.

  • createdDate er stofndagur kröfunnar í ykkar kerfi, svo krafa sem er flutt inn haldi upprunalegri dagsetningu. Það er aðeins lesið þegar krafan er stofnuð og má ekki vera í framtíðinni. Tími án tímabeltis er lesinn sem UTC (íslenskur tími). Sleppið því fyrir nýjar kröfur; þá er það tími vistunarinnar.

  • claimId: Vergo gefur bótaliðum ekki númer, svo þið gefið hverjum bótalið sitt eigið númer innan kröfunnar (1, 2, 3 og svo framvegis), líka lögmannskostnaði og hverjum lið sjúkrakostnaðar og annars kostnaðar. Innborganir vísa á bótaliði með því. Ef númerinu er sleppt verður það 0, og krafa þar sem tveir bótaliðir hafa sama númer verður ekki reiknuð (validationError í útreikningnum segir hvaða númer).

  • Uppfærsla kemur í stað allrar kröfunnar. Sendið alla kröfuna, því það sem er sleppt er fjarlægt.

  • Bótaliðir sem gilda: calcTemporaryEarningsLoss, calcPainAndSuffering, calcPermanentImpairment og calcPermanentDisability eru true ef þeim er sleppt, en calcImpairment26 og calcLegalCost eru false. Miskabætur skv. 26. gr. og lögmannskostnaður reiknast því aðeins ef flaggið er sent sem true.

  • Frádráttur: sendið tóman lista ([]) ef enginn frádráttur er.

  • Snið: dagsetningar eru á forminu 2024-03-15, tímar í UTC, upphæðir í krónum og kennitölur 10 tölustafir án bandstriks.

  • Villur koma til baka sem problem details með skýringu á íslensku eða ensku í detail, eða villum fyrir hvert svæði í errors þegar inntakið er ekki gilt.

Útreikningur kröfu

Útreikningur kröfu er sóttur með GET /compensations/injury-claims/{id}/calculation, eftir að kröfunni hefur verið flett upp eftir externalId. Krafan er reiknuð eins og hún er vistuð í Vergo, til uppgjörsdags eða til dagsins í dag ef hann vantar, og ekkert er vistað. Svarið sýnir hvern bótalið með vöxtum tímabil fyrir tímabil, hvernig innborganir ráðstöfuðust og samtölurnar.

  • totalClaimAmount í útreikningnum er það sem eftir stendur að greiða eftir innborganir (eftirstöðvar), sama fjárhæð og Heildarupphæð kröfu í reiknivél Vergo. Fjárhæðirnar eru ekki rúnaðar, svo rúnið í heilar krónur til að sýna þær. Í kröfulistanum er totalClaimAmount hins vegar krafan fyrir innborganir, og eftirstöðvarnar eru þar í totalOutstandingAmount.

  • Ef ekki er hægt að reikna kröfuna er svarið samt 200, en aðeins validationError er fyllt út, með skýringu á íslensku, og samtölurnar eru 0. Það á til dæmis við um nýja kröfu áður en starfsfólk ykkar hefur sett upp bótaliði hennar.