Skilagreinar
Uppgjör til kröfuhafa á því sem hefur verið innheimt
Written By Kjartan Valur Þórðarson
Last updated 18 days ago
Skilagrein er uppgjör til kröfuhafa: hvað skuldarinn hefur greitt, hvað fer til lögmannsins og hvað er skilað til kröfuhafa. Vergo reiknar hana út frá innborgunum og kostnaði innheimtukröfunnar.
Hlutaskilagrein og lokaskilagrein
Hlutaskilagrein: gerir upp innborganir sem hafa borist, en innheimtan heldur áfram.
Lokaskilagrein: síðasta uppgjörið. Hún segir annaðhvort að krafan sé greidd að fullu eða að eftirstöðvarnar séu felldar niður.
Athugaðu: lokaskilagrein breytir ekki stöðu innheimtukröfunnar og afskrifar ekkert í Vergo. Breyttu stöðunni í „Greitt“ eða „Afskrifað“ og skráðu afskrift ef þörf er á.
Svona gerir þú
Smelltu á „Ný skilagrein“ á spjaldinu „Skilagreinar“.
Veldu dagsetningu. Skilagreinin sýnir innheimtukröfuna eins og hún stóð þann dag. Dagsetningin má ekki vera fram í tímann.
Veldu „Hlutaskilagrein“ eða „Lokaskilagrein“.
Hakaðu við innborganirnar sem skilagreinin gerir upp, undir „Greiðslur til lögmanns“. Sjálfgefið er hakað við innborganir sem eru ekki á fyrri skilagrein.
Farðu yfir „Ráðstöfun fjárins“ og „Uppgjör til kröfuhafa“.
Smelltu á „Skoða PDF“ til að sjá skilagreinina.
Smelltu á „Gefa út“.
Með „Breyta skilagrein“ getur þú breytt texta þessarar einu skilagreinar, t.d. bætt við athugasemd eða númeri reiknings. Fjárhæðunum í töflunum er ekki hægt að breyta því þær eru reiknaðar.
Hvernig er reiknað?
Til lögmanns: áfallinn kostnaður með VSK, og útlagður kostnaður sem lögmaðurinn fær endurgreiddan.
Til kröfuhafa: það sem eftir er, þ.m.t. kostnaður kröfuhafa.
Staðgreiðsla: 22% fjármagnstekjuskattur af vöxtunum sem voru greiddir er dreginn frá og greiddur í ríkissjóð.
Kröfuhafi á VSK-skrá: virðisaukaskattur af kostnaðinum er dreginn frá hlut kröfuhafa. Ef hlutur hans dugar ekki fyrir honum kemur fram hvað kröfuhafi greiðir lögmanni.
Fjárhæðir til lögmanns eru í heilum krónum og kröfuhafi fær það sem eftir stendur.
Innborganir sem eru merktar „Greitt beint til kröfuhafa“ og afskriftir fara ekki á skilagrein, því lögmaðurinn fékk enga peninga.
Ef ekki er hægt að gefa út
Vergo segir hvað er að. Algengast er:
Engin innborgun er valin í hlutaskilagrein.
Vísitala eða vextir Seðlabankans eru ekki komin fyrir dagsetninguna. Veldu þá fyrri dag.
Að skoða og fella niður
Smelltu á skilagreinina til að sjá hana. Þú sækir PDF skjalið með „Niðurhala“ í skjalaskoðaranum.
„Fella niður“ eyðir skjalinu. Innborganirnar á henni haldast óbreyttar og má setja á nýja skilagrein.
Ef innborgun er breytt eftir að skilagrein er gefin út breytist skilagreinin ekki.
Sniðmát skilagreina
Útlit skilagreina er stillt í aðalvalmyndinni undir „Innheimta“ › „Stillingar“, á flipanum „Skilagreinar“. Þeim er breytt á sama hátt og bréfsniðmátum, sjá greinina Hvernig virka bréfsniðmát?
Was this helpful?
More in Innheimta
Að stofna innheimtukröfuKröfur, vextir og vaxtatöflurSkuldabréfKostnaður og gjaldskráStill need help? Ask the team