Öryggi og persónuvernd í gervigreindartengingum
Hvað gervigreindarforrit fær aðgang að í Vergo, hvert gögnin fara og hvað stofur ættu að passa.
Written By Kjartan Valur Þórðarson
Last updated 13 days ago
Þegar gervigreindarforrit eins og Claude eða ChatGPT er tengt við Vergo skiptist öryggið í tvennt:
Hvað gervigreindarforritið fær aðgang að í Vergo. Það stýrir fyrirtækið sjálft.
Hvað verður um gögnin hjá þeim sem rekur gervigreindina, t.d. OpenAI fyrir ChatGPT eða Anthropic fyrir Claude. Það fer að mestu eftir áskriftarleið.
Leiðbeiningar um að kveikja á tengingum og tengja gervigreindarforrit eru í greininni Að tengja gervigreindarforrit við Vergo (MCP).
Hvað gervigreindarforritið fær aðgang að í Vergo
Slökkt þar til stjórnandi kveikir. Enginn í fyrirtækinu getur tengt gervigreindarforrit við Vergo fyrr en stjórnandi kveikir á því, undir Stillingar > Tengingar > Fyrirtækjatengingar.
Stjórnandi velur hvað má. Möguleikunum er skipt í flokka. Til dæmis má leyfa eingöngu leit í réttarheimildum, og þá fara engar upplýsingar um mál eða umbjóðendur til gervigreindarinnar.
Lestur skjala er sérstakur möguleiki. Hann fylgir ekki Leyfa allt og stjórnandi þarf að kveikja á honum sérstaklega.
Skjöl í SharePoint. Gervigreindin les ekki skjöl í SharePoint í gegnum Vergo. Þegar hún sendir skjal úr SharePoint í undirritun sækir Vergo skjalið sjálft, aðeins ef notandinn má opna það í SharePoint, og gervigreindin fær ekki innihald þess.
Gervigreindin starfar sem notandinn. Notandinn skráir sig inn með sínum Vergo-aðgangi og lykilorðið fer aldrei til gervigreindarinnar. Hún hefur sömu heimildir og notandinn, aðeins í því fyrirtæki sem hann velur, og sér aldrei meira en hann. Notandinn velur líka sjálfur, innan þess sem stjórnandi leyfir, hvað hún má gera.
Stjórnendur sjá allar tengingar og geta aftengt þær. Þeir sjá hver tengdi hvað og hvenær tengingin var síðast notuð, og geta aftengt hvaða tengingu sem er. Aðgangur er athugaður við hverja fyrirspurn, svo aftenging eða læsing notanda tekur strax gildi.
Allt er skráð á notandann. Allt sem gervigreindin skráir eða breytir í Vergo er skráð á notandann, eins og hann hefði gert það sjálfur.
Takmörk á því sem hún getur gert. Hún getur ekki eytt málum, verkefnum, kröfum eða sniðmátum. Hún getur aðeins eytt tímaskráningum sem ekki eru komnar á reikning, og viðburðum, ef notandinn má það í Vergo.
Staðfesting áður en gögnum er breytt
Tól sem breyta gögnum eru merkt sem slík, svo gervigreindarforritið biður notandann um leyfi áður en þau keyra. Vergo biður gervigreindina líka að staðfesta breytingar og fá skýrt já áður en hún sendir skjal í undirritun eða eyðir einhverju.
Það er gervigreindarforritið sem spyr, ekki Vergo. Ef notandi stillir tól á að keyra sjálfkrafa (t.d. Always allow) kemur engin staðfesting. Leyfið því ekki tólum sem breyta gögnum, senda í undirritun eða eyða að keyra sjálfkrafa.
Hvert gögnin fara
Það sem gervigreindarforritið sækir úr Vergo fer til þess sem rekur það og fellur undir samning ykkar við þann aðila. Vergo stýrir því ekki hvað þar gerist. Áskriftarleiðin skiptir þar mestu.
Fyrirtækjaáskriftir
ChatGPT Business og Enterprise, Claude Team og Enterprise, og Microsoft Copilot Studio. Þar eru gögnin sjálfgefið ekki notuð til að þjálfa gervigreindina, vinnslusamningur fylgir og stjórnandi stýrir hvaða tengingar starfsfólk má nota.
Persónulegar áskriftir
ChatGPT Go, Plus og Pro, og Claude Free, Pro og Max. Þar geta samtöl verið notuð til þjálfunar nema notandinn slökkvi á því:
Í ChatGPT: Settings > Data controls > Improve the model for everyone.
Í Claude: Settings > Privacy > Help improve Claude.
Vinnsla innan og utan EES
Samningsaðili fyrirtækja á EES er írskt dótturfélag (OpenAI Ireland eða Anthropic Ireland), en gögnin eru að jafnaði vistuð og unnin í Bandaríkjunum. Flutningurinn byggist á stöðluðum samningsskilmálum ESB (SCC) sem fylgja vinnslusamningnum, og hvert fyrirtæki ætti að meta hann sjálft.
Persónuverndarlög banna ekki vinnslu utan EES, heldur krefjast þess að flutningurinn byggist á viðurkenndum grundvelli, eins og SCC. Sé vinnsla innan EES samt krafa stofunnar eru þetta kostirnir:
ChatGPT Enterprise. Gögnin eru vistuð í Evrópu fyrir ný vinnusvæði, og vinnsla í Evrópu (inference residency) fæst sem sérstakur valkostur. Samið er um Enterprise við söludeild OpenAI, að jafnaði með lágmarksfjölda notenda. ChatGPT Business býður hvorugt.
Microsoft Copilot Studio. Sé umhverfið í Power Platform stofnað í Evrópu fer vinnslan fram innan gagnasvæðis ESB (EU Data Boundary), sem nær líka yfir EFTA-ríkin og þar með Ísland. Til að það haldi þarf stjórnandi í Power Platform admin center að leyfa ekki Move data across regions og slökkva á Allow flex routing during periods of peak load, sem leyfir vinnslu utan svæðisins á álagstímum og er sjálfgefið á í Microsoft 365-umhverfum sem stofnuð voru eftir 25. mars 2026. Einnig þarf að sleppa Bing-vefleit, sem er unnin í Bandaríkjunum, og nota GPT-gerðirnar, því Claude-gerðirnar í Copilot Studio eru utan gagnasvæðis ESB.
Claude. Anthropic býður ekki gagnaheimili í Evrópu, hvorki í Claude Team né Enterprise, og gögnin eru vistuð í Bandaríkjunum. Claude fæst unnið innan ESB í gegnum skýjaþjónustu eins og AWS Bedrock eða Google Cloud Vertex AI, en það er tæknileg uppsetning og ekki sama varan og Claude Team eða Enterprise.
Vinnslusamningar
Vergo er ekki aðili að samningi ykkar við OpenAI eða Anthropic. Þegar stjórnandi kveikir á gervigreindartengingum fara gögnin til gervigreindarinnar á fyrirmælum stofunnar, sem er ábyrgðaraðili. Samningurinn sem skiptir máli er því samningur stofunnar við þann sem rekur gervigreindina.
Claude Team og Enterprise falla undir viðskiptaskilmála Anthropic (Commercial Terms), og vinnslusamningur Anthropic (Data Processing Addendum) er felldur inn í þá með tilvísun. Samningsaðili fyrirtækja á EES er Anthropic Ireland, Limited.
ChatGPT Business og Enterprise: OpenAI gerir vinnslusamning (Data Processing Addendum) við viðskiptavini. Til að ganga frá honum fyllið þið út eyðublað sem vísað er á á persónuverndarsíðu OpenAI fyrir fyrirtæki. Samningsaðili á EES er OpenAI Ireland Ltd.
Staðlaðir samningsskilmálar (SCC): báðir vinnslusamningarnir fella inn staðlaða samningsskilmála ESB, einingu 2 og 3, með tilvísun í ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/914.
Þetta er leiðsögn um hvar samningana er að finna, ekki lögfræðiráðgjöf. Hvert fyrirtæki metur sjálft hvort vinnslan samrýmist persónuverndarlögum.
Hvað stofur ættu að passa
Fyrirtækjaáskrift. Notið hana, ekki persónulega aðganga starfsfólks.
Vinnslusamningur. Gangið frá vinnslusamningi við þjónustuaðilann þar sem þess þarf og vistið PDF-afrit af samningunum með dagsetningu, því þeir eru uppfærðir reglulega. Skrifið líka stutta lýsingu á vinnslunni: hvaða gögn fara, um hverja þau eru og í hvaða tilgangi, og geymið hana með samningunum.
Minni gervigreindarinnar. Bæði ChatGPT og Claude geta munað upplýsingar úr samtölum og notað þær í síðari samtölum, líka um önnur mál. Það sem gervigreindin sækir úr Vergo getur þannig lent í minni hennar, utan aðgangsstýringar Vergo, og birst í samtali um óskylt mál. Að eyða samtali eyðir ekki endilega því sem var vistað í minni úr því. Í fyrirtækjaáskriftum getur stjórnandi slökkt á minni fyrir alla. Annars ætti hver notandi að slökkva á því, eða fara reglulega yfir hvað er vistað, áður en unnið er með gögn umbjóðenda.
Deilið ekki samtölum með tenglum ef þau innihalda gögn umbjóðenda.
Lesið yfir áður en sagt er já og leyfið ekki tólum sem breyta gögnum að keyra sjálfkrafa. Gervigreind getur gert mistök, og texti í skjölum eða á vefsíðum getur reynt að gefa henni fyrirmæli.
Reglur stofunnar. Setjið reglur um notkun gervigreindar með hliðsjón af þagnarskyldu lögmanna, og metið hvort upplýsa þurfi umbjóðendur.
Farið reglulega yfir tengingarnar í Vergo og aftengið þær sem eru ekki í notkun.
Viljið þið fara yfir stillingarnar með okkur, hafið samband á vergo@vergo.is.
Heimildir
Síðast yfirfarið í nóvember 2026. Skilmálar þjónustuaðila breytast, svo skoðið síður þeirra sjálfra:
Anthropic: Data Processing Addendum (í gildi frá 24. febrúar 2025)
OpenAI: Data Processing Addendum (í gildi frá 1. janúar 2026)
OpenAI: Enterprise privacy, með eyðublaði fyrir vinnslusamning
Anthropic: Regional compliance (Claude í gegnum AWS og Google Cloud)
Microsoft: Move data across regions for Copilots, AI agents, and generative AI features
Was this helpful?
More in Tengingar við önnur kerfi
Búa til API-aðgangSkaðabótakröfur í Vergo með APIStill need help? Ask the team