Stofna með gervigreind
Gervigreind les dómsorð eða annan texta og stofnar innheimtukröfu með kröfum og vöxtum
Written By Kjartan Valur Þórðarson
Last updated 18 days ago
Með „Stofna með gervigreind“ les gervigreind dómsorð eða annan texta og stofnar innheimtukröfu með kröfum, vaxtatöflum og innborgunum, eins og lögmaður myndi skrá þær. Það sparar mikla handavinnu, sérstaklega þegar vextir breytast á tímabilinu eða höfuðstóllinn hækkar í skrefum.
Athugaðu: gervigreind getur gert mistök. Farðu alltaf yfir kröfurnar og vaxtatöflurnar áður en þú sendir bréf.
Svona gerir þú
Í aðalvalmyndinni vinstra megin velur þú „Innheimta“ › „Innheimtukröfur“ og smellir á „Stofna með gervigreind“ efst á síðunni.
Límdu textann, t.d. dómsorðið, í reitinn „Texti“.
Veldu dagatalningu, mál, kröfuhafa og skuldara. Þegar þú velur mál fyllast kröfuhafi og skuldari út úr málinu ef þeir reitir eru tómir.
Smelltu á „Stofna“. Það getur tekið smá stund. Síða nýju innheimtukröfunnar opnast þegar hún er tilbúin.

Hvaða texta má líma inn?
Dómsorð, sem er algengast.
Dómkröfur úr stefnu. Ef þar er aðalkrafa og varakrafa er aðalkrafan notuð.
Réttarsátt eða innheimtubréf með fjárhæðum og vöxtum.
Texti sem hefur verið skannaður má innihalda villur, t.d. „3812001“ í stað „38/2001“. Gervigreindin les hann eins og lögmaður myndi gera.
Hvað verður til
Innheimtukrafa á innheimtustiginu „Löginnheimta“, með heiti sem gervigreindin velur, t.d. „Dómsorð - 400.000 kr.“. Þú getur breytt heitinu eftir á.
Kröfur: ein fyrir hverja fjárhæð. Þegar höfuðstóllinn hækkar í skrefum („af 100.000 kr. frá ..., af 250.000 kr. frá þeim degi ...“) verður hver hækkun sér krafa, „Hækkun höfuðstóls“, frá sínum degi.
Vaxtatöflur: þegar tegund vaxta breytist, t.d. vextir skv. 8. gr. fyrst og síðan dráttarvextir.
Innborganir sem dómsorðið dregur frá („að frádreginni innborgun ...“).
Málskostnaður með tiltekinni fjárhæð, sem krafa án vaxta.
Hvað verður ekki til
Málskostnaður án fjárhæðar, t.d. „að mati dómsins“ eða „að skaðlausu“.
Gjafsóknarkostnaður sem greiðist úr ríkissjóði, kostnaður sem kröfuhafi á að greiða, og ef málskostnaður fellur niður.
Gagnkröfur skuldarans.
Kostnaður (á kostnaðarspjöldunum), bréf og aðrir aðilar en kröfuhafi og skuldari. Þeim bætir þú við eftir á.
Ef eitthvað vantar í textann
Ef textinn dugar ekki til að stofna innheimtukröfuna er ekkert stofnað og skilaboð segja hvað vantar. Dæmi:
Dómsorð Landsréttar sem staðfestir héraðsdóm án fjárhæða. Þá þarf að líma dómsorð héraðsdóms með.
Vextir sem reiknast frá atburði sem ekki er dagsettur í textanum.
Lagaðu textann og reyndu aftur. Textinn má mest vera 10.000 stafir.
Að fara yfir niðurstöðuna
Berðu kröfurnar á spjaldinu „Kröfur“ saman við dómsorðið: fjárhæðir, gjalddaga og tegund vaxta.
Opnaðu vaxtatöflurnar og athugaðu tímabilin.
Athugaðu að innborganir séu á réttum dögum.
Athugaðu að samtala höfuðstóls sé sú sama og í dómsorðinu.
Was this helpful?
More in Innheimta
Að stofna innheimtukröfuKröfur, vextir og vaxtatöflurSkuldabréfKostnaður og gjaldskráStill need help? Ask the team