Skip to main content
Bréfsniðmát

Færibreytur í bréfum

Upplýsingar sem fyllast sjálfkrafa inn í bréf, t.d. nafn skuldara og fjárhæðir

Written By Kjartan Valur Þórðarson

Last updated 19 days ago

Færibreytur eru orð innan slaufusviga, t.d. {DebtorName}. Þegar bréf er búið til setur Vergo réttar upplýsingar úr innheimtukröfunni í stað færibreytunnar. Þú getur notað færibreytur í texta bréfsins, í haus og neðanmáli og í textum eininga, t.d. í texta undir undirskrift.

Athugaðu: Þetta eru aðrar færibreytur en í Word sniðmátum. Þær eru útskýrðar í greininni Færibreytur í sniðmátum.

Að setja inn færibreytu

  1. Opnaðu bréfið og smelltu á „Breyta sniðmáti“.

  2. Settu bendilinn þar sem færibreytan á að koma.

  3. Smelltu á „Bæta við breytu“ í tækjastikunni og veldu færibreytuna. Þær eru flokkaðar eins og í listanum hér að neðan.

Þú getur líka skrifað færibreytuna beint í textann. Í ritlinum eru færibreytur bláar. Ef þú heldur músinni yfir færibreytu sérðu hvað hún prentar í forskoðuninni. Ef færibreytan er appelsínugul þekkir Vergo hana ekki og hún prentast eins og hún er skrifuð.

Gott að vita

  • Upphæðir birtast með þúsundapunktum en án „kr.“, t.d. 1.250.000. Skrifaðu því „kr.“ á eftir færibreytunni í textanum.

  • Kennitölur birtast með bandstriki, t.d. 010190-1239.

  • Ef færibreyta hefur ekkert gildi birtist ekkert í hennar stað. Ef hún stendur ein í línu hverfur línan alveg. Það er hentugt í heimilisföngum, t.d. ef póstnúmer vantar.

  • Færibreytur sem byrja á „Bond“ hafa aðeins gildi á innheimtukröfum sem eru skuldabréf og færibreytur í flokknum Skilagrein aðeins í skilagreinum.

  • Hástafir og lágstafir skipta máli. {debtorname} virkar ekki, aðeins {DebtorName}.

Dagsetningar

Dagsetningar birtast sjálfgefið í löngu formi, t.d. „21. október 2026“. Þú getur valið annað form með því að setja tvípunkt og snið á eftir nafninu:

  • {LetterDate} skilar „21. október 2026“

  • {LetterDate:dd.MM.yyyy} skilar „21.10.2026“

  • {LetterDate:d. MMM yyyy} skilar „21. okt. 2026“

Sama gildir um {ReferenceDate}, {Date} og eigin dagsetningarreiti. {Date} er undantekning: hún birtist sjálfgefið í stuttu formi, t.d. „21.10.2026“.

Listar

Sumar færibreytur geta skilað fleiri en einni línu, t.d. listi yfir skuldara. Ef aðeins ein lína er í listanum birtist hún ein og sér. Ef línurnar eru fleiri getur þú valið form:

  • {DebtorsList}: ein lína fyrir hvern skuldara

  • {DebtorsList:Numbered}: númeraður listi

  • {DebtorsList:Bullet}: listi með punktum

Sama gildir um {ClaimsList} og {RespondentsList}.

Allar færibreytur

Aðalskuldari

Aðalskuldari innheimtukröfunnar, eins og hann er skráður undir aðilum.

  • {DebtorName}: nafn

  • {DebtorNationalId}: kennitala

  • {DebtorAddress}: heimilisfang

  • {DebtorPostalCode}: póstnúmer og staður, t.d. „101 Reykjavík“

Viðtakandi

Sá sem bréfið er stílað á. Hann er valinn í reitnum „Viðtakandi“ þegar bréfið er búið til og er aðalskuldarinn ef ekkert annað er valið. Notaðu þessar færibreytur í utanáskrift ef senda á sama bréf t.d. til ábyrgðarmanns.

  • {RecipientName}: nafn

  • {RecipientNationalId}: kennitala

  • {RecipientAddress}: heimilisfang

  • {RecipientPostalCode}: póstnúmer og staður

  • {RecipientRole}: hlutverk viðtakandans á innheimtukröfunni, t.d. „Skuldari“ eða „Ábyrgðarmaður“

Kröfuhafi

  • {CreditorName}: nafn

  • {CreditorNationalId}: kennitala

  • {CreditorAddress}: heimilisfang

  • {CreditorPostalCode}: póstnúmer og staður

  • {CreditorEmail}: netfang

  • {CreditorPhone}: sími

Innheimta

  • {CollectionNumber}: innheimtunúmer, t.d. „I-1042“

  • {LetterDate}: dagsetning bréfsins, eins og hún er valin þegar bréfið er búið til

  • {LetterDeadlineDays}: frestur bréfsins í dögum, talan ein, t.d. „15“

  • {ReferenceDate}: „Staða miðuð við“, dagurinn sem fjárhæðir bréfsins eru reiknaðar til

  • {ClaimsTotalPrincipal}: kröfuhöfuðstóll, samtala höfuðstóls krafnanna

  • {TotalPrincipal}: heildarhöfuðstóll

  • {TotalInterest}: vextir

  • {TotalCost}: kostnaður alls

  • {TotalAccruedCost}: áfallinn kostnaður

  • {TotalOutlay}: útlagður kostnaður

  • {TotalCreditorCost}: kostnaður kröfuhafa

  • {TotalCostVat}: virðisaukaskattur sem er innifalinn í kostnaðinum

  • {TotalPayment}: innborganir

  • {Balance}: eftirstöðvar, það sem skuldarinn á eftir að greiða

  • {ClaimsList}: listi yfir kröfurnar, ein lína á hverja kröfu, t.d. „250.000 kr. á gjalddaga þann 01.03.2026“

  • {DebtorsList}: skuldararnir sem eru valdir þegar bréfið er búið til, hver í sinni línu með nafni, kennitölu og heimilisfangi

  • {RespondentsList}: gerðarþolarnir sem eru valdir þegar bréfið er búið til, á sama hátt, t.d. í nauðungarsölubeiðni

Skuldabréf

Upphaflegir skilmálar skuldabréfsins. Þessar færibreytur eru tómar á innheimtukröfu sem er ekki skuldabréf.

  • {BondIssueDate}: útgáfudagur

  • {BondRegistrationDate}: þinglýsingardagur

  • {BondPrincipal}: upphafleg fjárhæð

  • {BondTerms}: upphaflegir skilmálar, t.d. „120 gjalddagar með 1 mánaðar millibili.“

  • {BondInterest}: vaxtaákvæði, t.d. „Fastir vextir: 6,50%“

  • {BondIndexation}: verðtrygging

  • {BondDefaultDate}: í vanskilum frá

Aðrir aðilar

Aðilar innheimtukröfunnar í tilteknu hlutverki, á forminu „Nafn, kennitala“. Ef þeir eru fleiri en einn eru þeir aðskildir með semíkommu.

  • {Guarantors}: ábyrgðarmenn

  • {Representatives}: fyrirsvarsmenn

  • {Mortgagors}: veðsalar

Fyrirtæki

Lögmannsstofan, eins og hún er skráð í stillingum fyrirtækisins.

  • {CompanyName}: nafn

  • {CompanyNationalId}: kennitala

  • {CompanyAddress}: heimilisfang

  • {CompanyPostalCode}: póstnúmer og staður

  • {CompanyCity}: staður, t.d. „Reykjavík“

  • {CompanyEmail}: netfang

  • {CompanyPhone}: sími

  • {CompanyVatNumber}: VSK númer

  • {CompanyBankAccount}: bankareikningur innheimtu. Það er bankareikningur fyrirtækisins sem er skráður með notkunina „Innheimtur“ undir „Bankareikningar“ í stillingum fyrirtækisins.

Starfsmaður

Starfsmaðurinn sem býr bréfið til.

  • {EmployeeName}: nafn

  • {EmployeeNationalId}: kennitala

  • {EmployeeEmail}: netfang

  • {EmployeeInitials}: upphafsstafir, t.d. „GS“

Löginnheimta

Þessar upplýsingar eru valdar þegar bréfið er búið til. Ef bréfið notar einhverja þeirra spyr Vergo um hana sjálfkrafa.

  • {CourtName}: dómstóll

  • {DistrictCommissionerName}: sýslumaður

  • {DistrictCommissionerAddress}: heimilisfang sýslumanns

  • {DistrictCommissionerPostalCode}: póstnúmer og staður sýslumanns

  • {VenueTypeName}: varnarþing

  • {VenueTypeReference}: lagatilvísun varnarþings, t.d. „32. gr. laga nr. 91/1991.“

  • {LawyerName}: lögmaður

  • {DocumentsList}: númeraður listi yfir framlögð skjöl

  • {LegalCostVat}: málsgrein um kröfu um virðisaukaskatt af málflutningsþóknun, ef kröfuhafi er ekki virðisaukaskattskyldur. Annars tómt.

  • {LegalCostVat:Claim}: „, auk virðisaukaskatts á málflutningsþóknun“ á sama hátt, til að setja inn í dómkröfuna

Skilagrein

Aðeins í skilagreinum til kröfuhafa.

  • {StatementNumber}: númer skilagreinar

  • {StatementDate}: dagsetning skilagreinar

  • {StatementPaidOut}: fjárhæðin sem er skilað til kröfuhafa

  • {StatementClosing}: lokaorð lokaskilagreinar, „Krafan er greidd að fullu.“ eða hvaða eftirstöðvar eru felldar niður. Tómt í annarri skilagrein.

Annað

  • {Date}: dagurinn í dag, þ.e. dagurinn sem bréfið er búið til

  • {PageNumber}: síðunúmer. Virkar aðeins í haus og neðanmáli.

  • {TotalPages}: fjöldi síðna í bréfinu. Virkar aðeins í haus og neðanmáli.

Eigin reitir

Ef þig vantar upplýsingar sem eru ekki á listanum hér að ofan, t.d. þingfestingardag eða tilvísun kröfuhafa, getur þú búið til eigin reit, t.d. {CustomDate:Þingfestingardagur}. Þá er spurt um hann þegar bréfið er búið til. Sjá greinina Eigin reitir og Reitir og fylgiskjöl.