Kröfur, vextir og vaxtatöflur
Að skrá kröfur, tegundir vaxta, vaxtatöflur, dagatalning og uppgjörsdagur
Written By Kjartan Valur Þórðarson
Last updated 18 days ago
Á almennri innheimtukröfu skráir þú hverja kröfu fyrir sig, t.d. hvern reikning. Vergo reiknar vextina sjálft út frá vöxtum Seðlabanka Íslands. Á skuldabréfi verða kröfurnar til úr skilmálum bréfsins, sjá greinina Skuldabréf.
Að skrá kröfu
Smelltu á „Stofna“ á spjaldinu „Kröfur“.
Fylltu út reitina:
Lýsing: t.d. „Reikningur nr. 1234“.
Höfuðstóll: fjárhæð kröfunnar.
Gjalddagi: dagurinn sem vextir reiknast frá. Ef dráttarvextir eiga að reiknast frá eindaga skráir þú eindagann hér.
Tegund vaxta: sjá hér að neðan.
Smelltu á „Vista kröfu“.
Til að breyta kröfu smellir þú á hana á spjaldinu „Kröfur“.
Tegundir vaxta
Dráttarvextir frá gjalddaga: algengast. Dráttarvextir skv. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 frá gjalddaga til greiðsludags.
Föst vaxtaprósenta frá gjalddaga: föst ársprósenta sem þú slærð inn.
Vextir frá gjalddaga skv. sérstakri vaxtatöflu: þegar tegund vaxta breytist á tímabilinu. Sjá „Vaxtatöflur“ hér að neðan.
Engir vextir: t.d. dæmdur málskostnaður.
Vextir eru lagðir við höfuðstól á 12 mánaða fresti, talið frá gjalddaga, sbr. 12. gr. laga nr. 38/2001. Það gerist sjálfkrafa.
Vaxtatöflur
Vaxtatafla er notuð þegar vextir kröfu eru ekki þeir sömu allan tímann, t.d. vextir skv. 8. gr. laga nr. 38/2001 fyrst og síðan dráttarvextir frá tilteknum degi, eins og oft er í dómsorðum.
Að búa til vaxtatöflu
Smelltu á „Stofna“ á spjaldinu „Vaxtatöflur“, gefðu töflunni nafn og smelltu á „Vista“.
Bættu við tímabilum með „Bæta við“. Fyrir hvert tímabil velur þú:
Upphafsdagsetning: „Frá upphafi“, þ.e. frá gjalddaga hverrar kröfu, eða tiltekinn dagur.
Lokadagsetning: „Fram að uppgjörsdegi“ eða tiltekinn dagur.
Tegund vaxta: „Dráttarvextir“, „Skaðabótavextir“ (8. gr. laga nr. 38/2001), „Óverðtryggðir útlánavextir“ (4. gr. laga nr. 38/2001) eða „Fastir vextir“ með prósentu.
Á kröfunni velur þú „Vextir frá gjalddaga skv. sérstakri vaxtatöflu“ og töfluna.

Dæmi: dómsorð segir vexti skv. 8. gr. frá gjalddaga til 1. júní 2025 og dráttarvexti eftir það. Taflan fær tvö tímabil:
Frá upphafi til 1. júní 2025: Skaðabótavextir.
Frá 1. júní 2025 fram að uppgjörsdegi: Dráttarvextir.
Gott að vita um vaxtatöflur
Ein tafla getur þjónað mörgum kröfum. Hver krafa fer í gegnum töfluna frá sínum eigin gjalddaga. Ef þú breytir töflunni breytast vextir allra krafnanna sem nota hana.
Tímabil má ekki skarast. Ef bil er á milli tímabila reiknast engir vextir á bilinu.
Lokadagur tímabils er ekki talinn með, svo næsta tímabil getur byrjað sama dag og það fyrra endar.
Ekki er hægt að eyða vaxtatöflu sem krafa notar. Taktu hana fyrst af kröfunum.
Vaxtatöflur tilheyra einni innheimtukröfu og eru ekki sameiginlegar með öðrum.
Dagatalning
Dagatalningin ræður hvernig dagar eru taldir í vaxtaútreikningi. Hún er valin þegar innheimtukrafan er stofnuð og má breyta með „Breyta“ á „Grunnupplýsingar“. Í öllum tilvikum er árið talið 360 dagar.
30E/360 (sjálfgefið): allir mánuðir eru taldir 30 dagar.
30/360: eins og 30E/360, með smávægilegum mun þegar tímabil endar á 31. degi mánaðar.
Act/360: raunverulegur fjöldi daga.
Uppgjörsdagur
Til dagsins í dag (sjálfgefið): vextir reiknast til dagsins í dag. Innheimtukrafan er reiknuð upp á nýtt á hverri nóttu.
Festa dagsetningu: vextir reiknast aðeins til þess dags, t.d. þegar samið hefur verið um uppgjör.
Í bréfum reiknast vextir til dagsins í „Staða miðuð við“, eða til uppgjörsdags ef hann er fyrr.
Að skoða útreikninginn
Spjaldið „Vaxtaútreikningar“ neðst á síðunni sýnir hvernig vextir hverrar kröfu eru reiknaðir, tímabil fyrir tímabil. „Samtölur“ hægra megin sýnir stöðuna í heild og til hvaða dags hún er reiknuð.
Was this helpful?
More in Innheimta
Kostnaður og gjaldskráInnborganir og afskriftirAð búa til bréfSkilagreinarStill need help? Ask the team