Skip to main content
Tengingar við önnur kerfi

Af hverju að tengja gervigreind við réttarheimildir Vergo?

Munurinn á Claude eða ChatGPT með og án Vergo-tengingar við leit og greiningu á réttarheimildum, og af hverju vefleit dugar ekki.

Written By Kjartan Valur Þórðarson

Last updated 19 days ago

Claude, ChatGPT og aðrar gervigreindir eru öflugar í að skrifa, greina og draga saman. Í íslenskri lögfræði skiptir þó mestu hvaðan svörin koma.

Í stuttu máli: Gervigreind án Vergo er eins og klár lögfræðingur sem svarar eftir minni eða gúgglar. Með Vergo situr sami lögfræðingur á bókasafninu, með dómasafnið, lagasafnið og tilvísanaskrána fyrir framan sig.

Án tengingar: svör eftir minni

Án tengingar svarar gervigreindin út frá því sem hún lærði í þjálfun. Íslensk dómaframkvæmd er lítill hluti af því, þekkingin er ekki ný og það vantar í hana. Þess vegna getur hún:

  • nefnt dóma sem eru ekki til eða gefið upp röng dómsnúmer,

  • vitnað í lagaákvæði sem hefur verið breytt eða fellt brott,

  • gefið almenna lýsingu þar sem þú þurftir dómaframkvæmd.

En gervigreindin getur leitað á vefnum

Það er rétt, en vefleit er eins og Google-leit. Hún finnur nokkrar síður sem leitarvélin telur passa og gervigreindin les bút úr þeim. Fyrir réttarheimildir dugar það ekki:

  • Hún finnur ekki alla dóma um ákvæði. Leitarvél veit ekki hvaða dómar beita 3. mgr. 26. gr. skaðabótalaga. Hún finnur síður þar sem orðin koma fyrir og skilar örfáum efstu.

  • Hún sér bara toppinn. Í hverri leit les gervigreindin yfirleitt aðeins nokkrar síður.

  • Heimildirnar eru dreifðar. Dómar eru á vefjum dómstólanna en úrskurðir nefnda og stofnana á mörgum ólíkum vefjum, misvel aðgengilegir leitarvélum.

  • Hún finnur gildandi lög, ekki lögin eins og þau voru. Eða gamalt afrit, án þess að segja frá því.

  • Hún blandar heimildum saman. Fréttir, bloggfærslur og glærur koma innan um frumheimildir.

Vefleit á vel við fréttir, almennar upplýsingar og erlendan rétt, og það má nota hvort tveggja. Gervigreindin notar þá Vergo fyrir íslenskar réttarheimildir og vefinn fyrir hitt.

Með Vergo-tengingunni

  • Svör byggð á heimildum. Gervigreindin leitar í dómum Hæstaréttar, Landsréttar og héraðsdóma, lögum og reglugerðum, álitum umboðsmanns Alþingis, úrskurðum úrskurðar- og kærunefnda og stofnana, og dómum Mannréttindadómstóls Evrópu. Hún les heimildirnar sjálfar, ekki bara útdrátt úr leitarniðurstöðum.

  • Tengill á hverja heimild. Hver heimild opnast með einum smelli í Vergo, svo auðvelt er að lesa hana áður en byggt er á henni.

  • Dómar sem vísa í ákvæði. Vergo heldur skrá yfir hvaða heimildir vísa í hvaða lagagrein, niður í málsgrein. Gervigreindin fær því lista yfir dómana, en ekki bara síður þar sem orðin koma fyrir.

  • Lögin eins og þau voru. Vergo geymir sögu lagasafnsins frá 1. október 1995. Gervigreindin getur lesið ákvæði eins og það var á tilteknum degi, t.d. þegar atvik máls gerðust, og Vergo merkir textann ef hann er ekki gildandi lög.

  • Betri leit. Hún keyrir margar leitir í einu, bæði eftir orðalagi og merkingu, og finnur þannig dóma um sama álitaefni þótt þeir orði það öðruvísi. Þetta er sama leit og Lögfinnur notar.

  • Rannsóknin endar í málinu. Biddu hana að vista mikilvægustu heimildirnar á málið með athugasemd um af hverju þær skipta máli.

Dæmi: sama spurning, tvö svör

„Bílslys varð í október 2019. Hver ber bótaábyrgð á tjóninu og hvernig hafa dómstólar beitt reglunni?“

  • Án Vergo: gervigreindin getur hæglega byggt svarið á gildandi umferðarlögum nr. 77/2019. Þau tóku gildi 1. janúar 2020, eftir slysið, svo svarið vísar í lög sem giltu ekki þegar slysið varð. Dómarnir sem hún nefnir eru eftir minni, og þá þarf að sannreyna.

  • Með Vergo: gervigreindin sér að eldri umferðarlög nr. 50/1987 giltu á slysdegi og les 88. gr. þeirra eins og hún hljóðaði þá. Hún finnur dómana sem vísa í greinina, á annað hundrað dóma Hæstaréttar og Landsréttar, því enn er dæmt eftir henni, og tekur saman niðurstöðurnar með tengli á hvern dóm.

Prófaðu sjálf(ur)

Besta leiðin til að sjá muninn er að spyrja sömu spurningar með og án tengingar, t.d.:

„Finndu dóma Landsréttar frá 2023 sem vísa í 26. gr. skaðabótalaga og taktu saman hvernig ákvæðinu var beitt.“

Ef gervigreindin leitar samt á vefnum, nefndu Vergo í spurningunni, t.d. „Leitaðu í réttarheimildum Vergo að …“.

Hafðu í huga

  • Gervigreindin finnur aðeins það sem er í heimildasafni Vergo, og saga lagasafnsins nær aftur til 1. október 1995.

  • Við leit í réttarheimildum fara engar upplýsingar um mál eða umbjóðendur úr Vergo til gervigreindarinnar, aðeins það sem þú skrifar sjálf(ur) í spurninguna. Stjórnandi getur leyft eingöngu leit í réttarheimildum.

Leiðbeiningar um að tengja gervigreind eru í greininni Að tengja AI-biðlara við Vergo (MCP), og um öryggi og persónuvernd í greininni Öryggi og persónuvernd í gervigreindartengingum.