Að tengja gervigreindarforrit við Vergo (MCP)
Tengdu Claude, ChatGPT og önnur gervigreindarforrit við Vergo í gegnum MCP.
Written By Kjartan Valur Þórðarson
Last updated 13 days ago
Þú getur tengt gervigreindarforrit eins og Claude, Claude Code, ChatGPT og Microsoft Copilot Studio við Vergo í gegnum MCP (Model Context Protocol). Þá getur gervigreindin t.d. flett upp, skráð og leiðrétt málskostnað (tíma, föst gjöld og útlagðan kostnað), stofnað og breytt málum, búið til skjöl úr sniðmátum og sent þau í undirritun, skráð fyrirtökur, haldið utan um verkefni og kröfur og leitað í réttarheimildum með sömu leit og Lögfinnur, beint úr samtalinu.
Gervigreindin starfar sem þú, með þínum heimildum í Vergo, og aðeins í þeim fyrirtækjum sem þú velur þegar þú tengir hana. Hún sér því aldrei meira en þú sérð sjálf(ur) í Vergo.
Gögn sem gervigreindin sækir í Vergo fara til þess sem rekur hana (t.d. Anthropic fyrir Claude, OpenAI fyrir ChatGPT eða Microsoft fyrir Copilot Studio) og falla undir samning þinn eða fyrirtækisins við þann aðila. Gakktu úr skugga um að notkunin samrýmist reglum fyrirtækisins um trúnað.
Fyrir stjórnendur: kveikja á gervigreindartengingum
Slökkt er á gervigreindartengingum þar til stjórnandi kveikir á þeim fyrir fyrirtækið. Til þess þarf réttindi til að breyta fyrirtækjatengingum.
Farðu í Stillingar > Tengingar.
Undir Fyrirtækjatengingar smellir þú á Tengja við Gervigreindartengingar (MCP).
Kveiktu á Leyfa gervigreindartengingar.
Veldu hvað gervigreindarforrit mega gera í fyrirtækinu. Leyfa allt, líka möguleika sem bætast við síðar leyfir allt, eða þú velur einstaka möguleika (sjá hér fyrir neðan).
Smelltu á Vista. Ekkert breytist fyrr en þú vistar og Hætta við lokar glugganum án breytinga.
Í sama glugga sérðu öll gervigreindarforrit sem eru tengd í fyrirtækinu, hver tengdi þau og hvenær þau voru síðast notuð, og getur aftengt þau.
Ef slökkt er á gervigreindartengingum eru öll gervigreindarforrit í fyrirtækinu aftengd. Ef möguleiki er tekinn af gildir það strax um tengingar sem fyrir eru.
Hvað mega gervigreindarforrit gera?
Möguleikunum er skipt í flokka. Stjórnandi velur hvað er leyft í fyrirtækinu og hver notandi velur úr því þegar hann tengir gervigreindarforrit.
Málskostnaður (tímar, föst gjöld, útlagður kostnaður og tillögur að tímaskráningu)
Lesa eigin: Gervigreindin getur séð málskostnaðinn þinn og tillögur Vergo að tímaskráningu.
Lesa allar á málum: líka málskostnað alls teymisins á málum sem þú hefur aðgang að, samtölur mála og yfirlit yfir það sem á eftir að reikningsfæra, eftir málum og greiðendum.
Skrá: Gervigreindin getur skráð tíma, föst gjöld og útlagðan kostnað á mál fyrir þig, og samþykkt eða hafnað tillögum að tímaskráningu. Verð, gjaldmiðill, afsláttur, virðisaukaskattur og greiðandi koma frá málinu, verðskránni og þér, eins og þegar þú skráir sjálf(ur). Hún getur líka leiðrétt eða eytt skráningum sem ekki eru komnar á reikning, ef þú mátt það í Vergo.
Mál
Lesa: öll mál sem þú hefur aðgang að í Vergo, eins og á málalistanum. Gervigreindin getur líka þrengt leitina að málum sem þú ert ábyrgðarmaður eða þátttakandi í, og sér málaflokka, merkimiða og viðbætur fyrirtækisins.
Stofna og breyta: stofna mál með umbjóðendum, gagnaðilum, málaflokki, merkimiðum og viðbótum, breyta málum, loka þeim eða setja í bið, og skrifa athugasemdir á mál og verkefni. Sjálfgefin verkefni málaflokksins fylgja nýju máli eins og í Vergo. Gervigreindin getur ekki eytt málum.
Verkefni
Lesa: verkefni og verkliði, með síum eftir máli, stöðu, forgangi og fresti.
Stofna og breyta: stofna verkefni og verkliði og breyta t.d. fresti, ábyrgðarmanni og stöðu. Gervigreindin getur ekki eytt verkefnum.
Tengiliðir: Lesa tengiliði fyrirtækisins sem þú hefur aðgang að.
Réttarheimildir
Leita og lesa: ítarleg leit í dómum, lögum, reglugerðum og úrskurðum, og dómum Mannréttindadómstóls Evrópu, með sömu leit og Lögfinnur notar, og lestur heimildanna sjálfra. Gervigreindin sér líka hvaða lagagreinar hver heimild vísar í, getur rakið hvaða dómar og úrskurðir vísa í tiltekin lög, grein eða málsgrein, og hversu oft vísað er í lög. Hún les líka lög eins og þau stóðu á tilteknum degi eða í tiltekinni útgáfu lagasafnsins, aftur til 1. október 1995, og sér sögu laganna: hverja útgáfu texta, breytingarlögin og gildistöku þeirra, og hvort lögin féllu brott. Hún vísar í heimildir með tengli inn í Vergo.
Bæta við mál: vista heimild á mál, með athugasemd um af hverju hún skiptir máli.
Skjöl
Lesa skjöl mála: skjöl mála sem geymd eru í Vergo. Stjórnandi kveikir sérstaklega á þessu og það fylgir ekki Leyfa allt. Þegar kveikt er á því er það hakað sjálfkrafa þegar þú tengir gervigreindarforrit, og þú getur tekið hakið af. Skjöl í SharePoint les gervigreindin sem þú, með Microsoft 365 tengingu.
Stofna úr sniðmátum: býr til skjal á mál úr sniðmátum fyrirtækisins, fyllt út með upplýsingum málsins, sem Word eða PDF. Áður sér hún hvaða færibreytur vantar gildi á málinu, t.d. netfang eða kennitölu umbjóðanda. Skjölin vistast í Vergo, ekki í SharePoint.
Sýsla með sniðmát: skrifar sniðmát með þér, yfirfer færibreyturnar og vistar þau í sniðmátum fyrirtækisins, eða lagar sniðmát sem fyrir eru. Krefst heimildar til að sýsla með sniðmát í Vergo. Gervigreindin getur ekki eytt sniðmátum.
Viðburðir: Lesa og Stofna og breyta viðburði í dagatali Vergo, t.d. fyrirtökur og fundi á málum. Viðburðirnir fara ekki í Outlook.
Undirritanir
Lesa: beiðnir um undirritun og hverjir hafa undirritað.
Senda í undirritun: sendir PDF-skjöl málsins, sem geymd eru í Vergo eða í SharePoint-möppu málsins, í rafræna undirritun með rafrænum skilríkjum, í tölvupósti eða SMS, minnir undirritendur á og afturkallar beiðnir. Skjal úr SharePoint sendir hún aðeins ef þú mátt opna það í SharePoint, og undirrituð afrit vistast í Vergo. Undirritendur fá boðið strax, svo gervigreindin sýnir þér skjölin, undirritendurna og skilaboðin og fær skýrt já fyrst. Krefst heimildar til undirritana í Vergo.
Kröfur
Lesa og reikna: skaðabótakröfur og innheimtukröfur með útreikningi, og vaxtareikningur (dráttarvextir, skaðabótavextir eða fastir vextir) með vöxtum Seðlabankans, eins og vaxtareiknir Vergo.
Stofna og breyta: skaðabótakröfur, og innheimtukröfur með kröfuliðum og innborgunum. Gervigreindin getur ekki eytt kröfum.
Möguleikar sem breyta gögnum eru merktir Breytir gögnum. Í Vergo Core heita flokkarnir Verkkostnaður og Verk, og möguleikinn Bæta við verk.
Sumir möguleikar þarfnast annarra og fylgja þeim sjálfkrafa. Til dæmis þarf Sýsla með sniðmát möguleikann Stofna úr sniðmátum, sem þarf að Lesa mál. Fyrirtæki sem leyfa allt fá nýja möguleika sjálfkrafa, en tengingar sem þegar eru til fá þá ekki fyrr en notandinn tengist aftur og hakar við þá.
Tengja gervigreindarforrit
Farðu í Stillingar > Tengingar.
Undir Notandatengingar smellir þú á Tengja við AI-biðlarar (MCP).
Þar finnur þú slóð netþjóns Vergo með afritunarhnappi og leiðbeiningar fyrir hvert gervigreindarforrit.
Claude (claude.ai og Claude-forritið)
Vergo er í tengingasafni Claude. Opnaðu Settings og svo Connectors í Claude.
Veldu Browse connectors, leitaðu að Vergo og veldu Connect.
Skráðu þig inn í Vergo og samþykktu tenginguna.
Einnig er hægt að bæta Vergo við sem Add custom connector með slóð netþjónsins.
Í Claude Team og Enterprise gæti eigandi þurft að bæta tenglinum við fyrir fyrirtækið fyrst.
Claude Code
Afritaðu skipunina af síðunni í Vergo og keyrðu hana í skipanalínu. Hún lítur svona út:
claude mcp add --transport http vergo <slóð netþjóns>Keyrðu
/mcpí Claude Code, veldu vergo og svo Authenticate. Vafrinn opnast og þú skráir þig inn í Vergo.
Skjöl úr SharePoint á tölvunni: Í Claude-forritinu á tölvunni (með aðgangi að skrám) og í Claude Code getur Claude líka lesið skjöl mála beint úr SharePoint-möppunum sem þú samstillir við OneDrive. Hvernig þú samstillir möppurnar er í greininni Tengja við OneDrive drif á tölvunni þinni.
ChatGPT
Krefst greiddrar áskriftar að ChatGPT.
Opnaðu Plugins í ChatGPT, veldu plústáknið og svo Add custom MCP server.
Gefðu honum nafnið Vergo og límdu þetta inn sem lýsingu (Description), svo ChatGPT viti hvenær á að nota Vergo:
Vergo is practice management software for Icelandic law firms (Vergo Law) and other professional firms (Vergo Core), with a database of legal sources for Icelandic law (réttarheimildir). Use it first and foremost for legal research: Icelandic judgments (dómar from Hæstiréttur, Landsréttur and héraðsdómar), laws (lög), regulations (reglugerðir) and rulings (úrskurðir), judgments of the European Court of Human Rights (Mannréttindadómstóll Evrópu, MDE) and the case law of the Court of Justice of the European Union (Evrópudómstóllinn), and how provisions have been applied. Also use it to find projects (mál/verk), tasks (verkefni) and contacts (tengiliðir), log hours, fixed fees and expenses (tímaskráning) and review worklog suggestions, as the signed-in user with their permissions.Lýsingin er á ensku því hún er ætluð ChatGPT en ekki notendum. ChatGPT svarar samt á íslensku þegar þú skrifar á íslensku.
Undir Connection límir þú inn slóð netþjónsins og velur OAuth sem auðkenningu.
Veldu I understand and want to continue og svo Create as a plugin.
Settu Vergo-viðbótina upp (Install) úr viðbótunum þínum, skráðu þig inn í Vergo og samþykktu tenginguna. Í samtali skrifar þú @ og velur Vergo.
Í ChatGPT Business og Enterprise gæti stjórnandi þurft að leyfa sérsniðna MCP-netþjóna fyrir vinnusvæðið fyrst.
Vergo er líka í viðbótasafni ChatGPT, en sú útgáfa hefur enn ekki alla möguleika, t.d. skjöl, undirritanir og kröfur. Ef þú settir hana upp skaltu fjarlægja hana og bæta Vergo við eins og lýst er hér, svo Vergo sé ekki tvisvar.
Microsoft Copilot Studio
Krefst leyfis fyrir Copilot Studio frá Microsoft. Það fylgir ekki Microsoft 365 Business Premium.
Opnaðu agentinn í Copilot Studio, farðu í Tools, veldu Add a tool, svo New tool og Model Context Protocol.
Gefðu honum nafnið Vergo (Server name) og límdu sömu lýsingu og fyrir ChatGPT hér fyrir ofan inn sem Server description, svo agentinn viti hvenær á að nota Vergo.
Límdu slóð netþjónsins inn sem Server URL.
Veldu OAuth 2.0 sem auðkenningu, Dynamic discovery sem gerð og svo Create. Hvorki None né Manual virkar með Vergo.
Veldu Create a new connection, skráðu þig inn í Vergo og samþykktu tenginguna, og svo Add to agent.
Agentinn má svo birta í Microsoft 365 Copilot og Teams. Stjórnandi gæti þurft að leyfa sérsniðna tengla í gagnastefnum (data policies) Power Platform fyrst. Á samþykkissíðunni og í lista yfir tengd gervigreindarforrit heitir tengingin Microsoft Power Platform.
Önnur gervigreindarforrit
VS Code, Cursor og önnur forrit sem styðja fjartengda MCP-netþjóna. Á síðunni í Vergo er stilling sem þú afritar inn í MCP-stillingar forritsins.
Samþykkja tenginguna
Þegar gervigreindarforritið tengist opnast samþykkissíða Vergo í vafranum. Ef þú ert ekki innskráð(ur) skráir þú þig fyrst inn á venjulegan hátt.
Ef þú ert í fleiri en einu fyrirtæki hakar þú við fyrirtækin sem tengingin á að ná til og velur sjálfgefið fyrirtæki. Gervigreindin vinnur í því nema þú biðjir um annað, og í hverju fyrirtæki getur hún aðeins gert það sem það fyrirtæki leyfir.
Veldu hvað gervigreindin má gera, eða Leyfa allt. Aðeins er hægt að velja það sem fyrirtækið leyfir.
Smelltu á Leyfa. Þá ferðu aftur í gervigreindarforritið og tengingin er tilbúin.
Dæmi um notkun
„Hvað skráði ég marga tíma í síðustu viku?“
„Skráðu 1,5 tíma á mál 2026-123 í dag: Yfirferð kaupsamnings.“
„Finndu dóma Hæstaréttar frá síðustu fimm árum um galla í fasteignakaupum.“
„Hver er kennitala tengiliðarins Jón Jónsson?“
„Skráðu þinglýsingargjald sem útlagðan kostnað á mál 2026-123.“
„Förum yfir tillögurnar mínar að tímaskráningu frá því í gær.“
„Hvaða verkefni mín eru komin fram yfir frest? Færðu frestinn á því fyrsta um viku.“
„Finndu dóma sem vísa í 26. gr. skaðabótalaga og vistaðu þá helstu á mál 2026-123.“
„Hvaða greinar skaðabótalaga er oftast vísað í, og hvaða dómar Landsréttar hafa fallið um 3. mgr. 5. gr. síðustu tvö ár?“
„Hvernig hljóðaði 1. gr. erfðalaga árið 2005 og hvernig hljóðar hún í dag? Berðu saman.“
„Sýndu mér sögu laga um vexti og verðtryggingu: hvenær breyttust þau og með hvaða lögum?“
„Stofnaðu mál fyrir Jón Jónsson gegn Tryggingafélaginu hf., málaflokkur skaðabótamál, og skrifaðu athugasemd með samantekt af fundinum.“
„Hvað á eftir að reikningsfæra á málunum mínum?“
„Búðu til umboð á mál 2026-123 úr sniðmátinu okkar sem PDF og sendu það umbjóðandanum í undirritun.“
„Skráðu fyrirtöku í máli 2026-123 í Héraðsdómi Reykjavíkur 12. nóvember kl. 9:15.“
„Reiknaðu dráttarvexti af 1.500.000 kr. frá 1. mars 2025 til dagsins í dag.“
„Hjálpaðu mér að skrifa sniðmát fyrir kröfubréf með réttum færibreytum.“
Gervigreindin er beðin um að staðfesta við þig áður en hún skráir eða breytir einhverju, og að fá skýrt já áður en hún sendir skjal í undirritun eða eyðir tímaskráningu eða viðburði. Það er þó gervigreindarforritið sem spyr, ekki Vergo: ef þú leyfir tólum að keyra sjálfkrafa (t.d. Always allow) kemur engin staðfesting. Málum, verkefnum, kröfum og sniðmátum eyðir hún ekki.
Aftengja gervigreindarforrit
Farðu í Stillingar > Tengingar og smelltu á Breyta við AI-biðlarar (MCP).
Undir Tengdir AI-biðlarar smellir þú á … við tenginguna og velur Aftengja.
Gervigreindarforritið missir aðgang að Vergo samstundis. Stjórnendur geta líka aftengt gervigreindarforrit annarra notenda í fyrirtækinu.
Öryggi
Aðgangur gervigreindarforrita er athugaður við hverja einustu fyrirspurn. Ef notanda er læst, hann fjarlægður úr fyrirtækinu, slökkt á gervigreindartengingum eða tengingin aftengd hættir hún strax að virka.
Útskráning úr Vergo í vafranum aftengir ekki gervigreindarforrit. Notaðu Aftengja til þess.
Allt sem gervigreindin skráir er skráð á þig, eins og þú hefðir gert það sjálf(ur).
Hvert gögnin fara, hvaða áskriftarleiðir henta og hvað stofur ættu að passa er í greininni Öryggi og persónuvernd í gervigreindartengingum.
Ef tenging tekst ekki
„AI connections are not enabled for this company“ eða fyrirtækið er óvirkt á samþykkissíðunni: stjórnandi þarf að kveikja á gervigreindartengingum (sjá ofar).
„Fyrirtækið leyfir ekkert af því sem þessi AI-biðlari biður um“: stjórnandi þarf að leyfa fleiri möguleika.
Gervigreindarforritið getur ekki lengur notað Vergo: tengingin gæti hafa verið aftengd. Tengdu það aftur.
Gervigreindin sér ekki nýja möguleika, t.d. að stofna mál eða senda í undirritun: nýir möguleikar fylgja ekki tengingum sem þegar eru til, og hún gæti enn notað eldri lista Vergo yfir það sem hún getur gert. Aftengdu Vergo og tengdu aftur í stillingum gervigreindarforritsins, t.d. Settings > Connectors í Claude, og hakaðu við nýju möguleikana þegar þú samþykkir tenginguna. Ef fyrirtækið leyfir ekki allt þarf stjórnandi fyrst að bæta þeim við.
Was this helpful?
More in Tengingar við önnur kerfi
Búa til API-aðgangAf hverju að tengja gervigreind við réttarheimildir Vergo?Skaðabótakröfur í Vergo með APIStill need help? Ask the team