Skip to main content
Innheimta

Innborganir og afskriftir

Að skrá greiðslur og afskriftir og hvert greiðslan fer

Written By Kjartan Valur Þórðarson

Last updated 18 days ago

Innborganir eru greiðslur skuldarans upp í kröfuna. Afskriftir lækka það sem skuldarinn skuldar án þess að peningar komi inn, t.d. eftirgjöf eða leiðrétting. Hvort tveggja er skráð á síðu innheimtukröfunnar, á spjöldunum „Innborganir“ og „Afskriftir“.

Að skrá innborgun

  1. Smelltu á „Stofna“ á spjaldinu „Innborganir“.

  2. Sláðu inn upphæð og greiðsludag. Lýsing er valfrjáls.

  3. Skoðaðu „Forskoðun“ neðst í glugganum. Þar sést hvert greiðslan fer, á vexti og höfuðstól hverrar kröfu.

  4. Smelltu á „Vista“.

Afskrift er skráð á sama hátt á spjaldinu „Afskriftir“.

Hvert fer greiðslan?

Sjálfgefið fer greiðslan fyrst í kostnað og síðan í kröfurnar, elsta gjalddaga fyrst. Innan hverrar kröfu greiðast vextir fyrst. Þú getur breytt þessu:

  • Innan kröfu er greitt: „Vextir fyrst“ eða „Höfuðstóll fyrst“.

  • Röð: „Elsti gjalddagi fyrst“, „Hæstu vextir fyrst“ eða „Lægstu vextir fyrst“.

  • Kostnaður fyrst: slökktu á honum ef greiðslan á að fara í kröfurnar á undan kostnaðinum.

  • Reglur: með „Bæta við reglu“ getur þú látið greiðsluna fara fyrst inn á tiltekna kröfu eða tiltekinn kostnað, með eða án hámarks. Reglurnar gilda í röð ofan frá og afgangurinn fer eftir röðinni hér að ofan.

Ef greiðslan er hærri en það sem skuldarinn skuldar birtist afgangurinn sem „Ofgreitt“. Greiðslur eru gerðar upp í heilum krónum.

Hakreitir

  • Greitt beint til kröfuhafa: hakaðu við ef skuldarinn greiddi kröfuhafanum sjálfum. Lögmaðurinn fékk þá aldrei peningana og greiðslan fer ekki á skilagrein.

  • Lækkar grunn innheimtuþóknunar: hakaðu við ef greiðslan á að lækka grunninn sem innheimtuþóknunin er reiknuð af, t.d. greiðsla áður en innheimtan hófst. Greiðslur sem lögmaðurinn innheimtir lækka hann ekki.

Innborgun á skuldabréf

Ef skuldarinn greiðir meira en það sem er fallið í gjalddaga lækkar afgangurinn höfuðstól bréfsins. Hann verður ekki ofgreiðsla nema bréfið sé gjaldfellt eða uppgreitt. Í forskoðun eru slíkar línur merktar „Umfram gjaldfallið, lækkar höfuðstólinn“.

Hvað afgangurinn gerir við næstu gjalddaga fer eftir skilmálum bréfsins (sjá greinina Skuldabréf). Þú getur valið annað fyrir eina innborgun í reitnum „Umfram gjaldfallið“, sem birtist þegar greiðslan nær umfram það sem er gjaldfallið.

Að breyta eða eyða

Notaðu blýantinn eða ruslafötuna í línu innborgunarinnar. Staða innheimtukröfunnar reiknast þá upp á nýtt. Ef innborgun er þegar komin á skilagrein breytist skilagreinin ekki. Hún geymir greiðsluna eins og hún var.