Skip to main content
Bókhaldskerfi

Að gefa út reikninga á eigin kennitölu

Fyrir lögmenn á sameiginlegri stofu sem gefa út reikninga á sinni eigin kennitölu

Written By Kjartan Valur Þórðarson

Last updated 19 days ago

Á sameiginlegri stofu gefa lögmenn stundum út reikninga á sinni eigin kennitölu frekar en kennitölu stofunnar. Vergo styður þetta með sérstakri reikningagerð fyrir þá starfsmenn — með eigin númeraröð, bankareikningi og stillingum.

Að stofna reikningagerð fyrir eigin kennitölu

  1. Farðu í Stillingar → Tengingar → Bókhaldstenging → Tengjast.

  2. Smelltu á Stofna nýja tengingu og veldu Vergo reikningagerð.

  3. Gefðu tengingunni heiti, til dæmis nafn lögmannsins.

  4. Undir Notað af velur þú Völdum starfsmönnum og velur þá starfsmenn sem eiga að gefa út reikninga í gegnum hana.

Reikningar þeirra starfsmanna fara eftir það sjálfkrafa í gegnum þessa tengingu. Aðrir starfsmenn nota áfram þá tengingu sem öll stofan notar.

Hvað fylgir tengingunni

  • Eigin númeraröð. Reikningar tengingarinnar fá númer í sinni eigin röð, óháð öðrum tengingum. Númer eru einkvæm og aldrei endurnotuð.

  • Eigin bankareikningur. Bankareikningurinn sem skráður er á tenginguna birtist á reikningum hennar.

  • Eigin sjálfgefnar stillingar. Greiðslufrestur, eindagi, dagsetning, athugasemd og sundurliðun eru stillt á tenginguna sjálfa.

  • Eigin kennitala sendanda ef rafrænir reikningar eru sendir um Unimaze.

Að breyta því hverjir nota tenginguna

Hægt er að breyta þessu á tvo vegu:

  • Í tengingunni sjálfri, undir Notað af — þar er hægt að bæta við eða fjarlægja marga starfsmenn í einu.

  • Undir Stillingar → Notendur — þar sést tenging hvers notanda í hliðarglugganum og stjórnendur geta breytt henni fyrir einn og einn.

Tengingu sem einhver gefur út reikninga í gegnum er ekki hægt að eyða fyrr en þeir starfsmenn hafa verið færðir á aðra tengingu.