Að tengja AI-biðlara við Vergo (MCP)
Tengdu Claude, ChatGPT og aðra AI-biðlara við Vergo í gegnum MCP.
Written By Kjartan Valur Þórðarson
Last updated About 2 hours ago
Þú getur tengt AI-biðlara eins og Claude, Claude Code og ChatGPT við Vergo í gegnum MCP (Model Context Protocol). Þá getur AI-biðlarinn t.d. flett upp málskostnaðinum þínum, fundið mál og tengiliði, leitað í réttarheimildum og skráð tíma fyrir þig, beint úr samtalinu.
AI-biðlarinn starfar sem þú, með þínum heimildum í Vergo, og aðeins í því fyrirtæki sem þú velur þegar þú tengir hann. Hann sér því aldrei meira en þú sérð sjálf(ur) í Vergo.
Gögn sem AI-biðlarinn sækir í Vergo fara til þess sem rekur hann (t.d. Anthropic fyrir Claude eða OpenAI fyrir ChatGPT) og falla undir samning þinn eða fyrirtækisins við þann aðila. Gakktu úr skugga um að notkunin samrýmist reglum fyrirtækisins um trúnað.
Fyrir stjórnendur: kveikja á gervigreindartengingum
Slökkt er á gervigreindartengingum þar til stjórnandi kveikir á þeim fyrir fyrirtækið. Til þess þarf réttindi til að breyta fyrirtækjatengingum.
Farðu í Stillingar > Tengingar.
Undir Fyrirtækjatengingar smellir þú á Tengja við Gervigreindartengingar (MCP).
Kveiktu á Leyfa gervigreindartengingar.
Veldu hvað AI-biðlarar mega gera í fyrirtækinu. Leyfa allt, líka möguleika sem bætast við síðar leyfir allt, eða þú velur einstaka möguleika (sjá hér fyrir neðan).
Í sama glugga sérðu alla AI-biðlara sem eru tengdir í fyrirtækinu, hver tengdi þá og hvenær þeir voru síðast notaðir, og getur aftengt þá.
Ef slökkt er á gervigreindartengingum eru allir AI-biðlarar í fyrirtækinu aftengdir. Ef möguleiki er tekinn af gildir það strax um tengingar sem fyrir eru.
Hvað mega AI-biðlarar gera?
Möguleikunum er skipt í flokka. Stjórnandi velur hvað er leyft í fyrirtækinu og hver notandi velur úr því þegar hann tengir AI-biðlara.
Málskostnaður (tímar, föst gjöld og útlagður kostnaður)
Lesa: AI-biðlarinn getur séð málskostnaðinn þinn.
Skrá tíma: AI-biðlarinn getur skráð tíma á mál fyrir þig. Tímagjald, gjaldmiðill, afsláttur og greiðandi koma frá málinu og þér, eins og þegar þú skráir tíma sjálf(ur).
Mál og verkefni: Lesa málin þín og verkefni á þeim.
Tengiliðir: Lesa tengiliði fyrirtækisins sem þú hefur aðgang að.
Réttarheimildir: Leita í dómum, lögum, reglugerðum og úrskurðum.
Í Vergo Core heita flokkarnir Verkkostnaður og Verk og verkþættir.
Tengja AI-biðlara
Farðu í Stillingar > Tengingar.
Undir Notandatengingar smellir þú á Tengja við AI-biðlarar (MCP).
Þar finnur þú slóð netþjóns Vergo með afritunarhnappi og leiðbeiningar fyrir hvern AI-biðlara.
Claude (claude.ai og Claude-forritið)
Opnaðu Settings og svo Connectors í Claude.
Veldu Add custom connector.
Gefðu honum nafnið Vergo og límdu inn slóð netþjónsins.
Veldu Connect, skráðu þig inn í Vergo og samþykktu tenginguna.
Í Claude Team og Enterprise gæti eigandi þurft að bæta tenglinum við fyrir fyrirtækið fyrst.
Claude Code
Afritaðu skipunina af síðunni í Vergo og keyrðu hana í skipanalínu. Hún lítur svona út:
claude mcp add --transport http vergo <slóð netþjóns>Keyrðu
/mcpí Claude Code, veldu vergo og svo Authenticate. Vafrinn opnast og þú skráir þig inn í Vergo.
ChatGPT
Krefst greiddrar áskriftar að ChatGPT.
Opnaðu Settings > Apps & Connectors > Advanced settings og kveiktu á Developer mode.
Veldu Create, gefðu tenglinum nafnið Vergo, límdu inn slóð netþjónsins og veldu OAuth sem auðkenningu.
Veldu Create, skráðu þig inn í Vergo og samþykktu tenginguna.
Í ChatGPT Business og Enterprise gæti stjórnandi þurft að leyfa developer mode fyrst.
Aðrir AI-biðlarar
VS Code, Cursor og aðrir AI-biðlarar sem styðja fjartengda MCP-netþjóna. Á síðunni í Vergo er stilling sem þú afritar inn í MCP-stillingar biðlarans.
Samþykkja tenginguna
Þegar AI-biðlarinn tengist opnast samþykkissíða Vergo í vafranum. Ef þú ert ekki innskráð(ur) skráir þú þig fyrst inn á venjulegan hátt.
Veldu fyrirtækið sem tengingin á við. Hún gildir aðeins í því fyrirtæki. Viljir þú nota AI-biðlarann í öðru fyrirtæki tengir þú hann aftur og velur það.
Veldu hvað AI-biðlarinn má gera, eða Leyfa allt. Aðeins er hægt að velja það sem fyrirtækið leyfir.
Smelltu á Leyfa. Þá ferðu aftur í AI-biðlarann og tengingin er tilbúin.
Dæmi um notkun
„Hvað skráði ég marga tíma í síðustu viku?“
„Skráðu 1,5 tíma á mál 2026-123 í dag: Yfirferð kaupsamnings.“
„Finndu dóma Hæstaréttar frá síðustu fimm árum um galla í fasteignakaupum.“
„Hver er kennitala tengiliðarins Jón Jónsson?“
Áður en AI-biðlarinn skráir tíma staðfestir hann mál, dagsetningu, fjölda tíma og lýsingu við þig.
Aftengja AI-biðlara
Farðu í Stillingar > Tengingar og smelltu á Breyta við AI-biðlarar (MCP).
Undir Tengdir AI-biðlarar smellir þú á … við tenginguna og velur Aftengja.
AI-biðlarinn missir aðgang að Vergo samstundis. Stjórnendur geta líka aftengt AI-biðlara annarra notenda í fyrirtækinu.
Öryggi
Aðgangur AI-biðlara er athugaður við hverja einustu fyrirspurn. Ef notanda er læst, hann fjarlægður úr fyrirtækinu, slökkt á gervigreindartengingum eða tengingin aftengd hættir hún strax að virka.
Útskráning úr Vergo í vafranum aftengir ekki AI-biðlara. Notaðu Aftengja til þess.
Allt sem AI-biðlarinn skráir er skráð á þig, eins og þú hefðir gert það sjálf(ur).
Ef tenging tekst ekki
„AI connections are not enabled for this company“ eða fyrirtækið er óvirkt á samþykkissíðunni: stjórnandi þarf að kveikja á gervigreindartengingum (sjá ofar).
„Fyrirtækið leyfir ekkert af því sem þessi AI-biðlari biður um“: stjórnandi þarf að leyfa fleiri möguleika.
AI-biðlarinn getur ekki lengur notað Vergo: tengingin gæti hafa verið aftengd. Tengdu hann aftur.
Was this helpful?
More in Tengingar við önnur kerfi
Búa til API-aðgangStill need help? Ask the team