Eigin reitir og Reitir og fylgiskjöl
Hvað bréfaglugginn spyr um þegar bréf er búið til og hvaða skjöl fylgja bréfinu
Written By Kjartan Valur Þórðarson
Last updated 19 days ago
Þegar bréf er búið til á innheimtukröfu opnast bréfagluggi sem spyr um það sem bréfið þarf, t.d. dagsetningu bréfs, viðtakanda eða dómstól. Vergo sér sjálft hvað bréfið þarf út frá færibreytunum og einingunum sem það notar. Þú ræður heitum reitanna, hjálpartexta og sjálfgefnum gildum, og getur bætt við eigin reitum.
Eigin reitir
Ef bréfið þarf upplýsingar sem eru ekki skráðar í Vergo, t.d. þingfestingardag, tilvísun kröfuhafa eða málavexti, býrð þú til eigin reit. Hann virkar eins og færibreyta, en lögmaðurinn fyllir hann út í bréfaglugganum.
Reitirnir eru af þremur tegundum:
{CustomText:Tilvísun kröfuhafa}: texti í einni línu.{CustomLongText:Málavextir}: langur texti. Línuskil haldast í bréfinu.{CustomDate:Þingfestingardagur}: dagsetning sem er valin í dagatali. Hún prentast sjálfgefið í löngu formi, t.d. „21. október 2026“. Ef þú vilt annað form skrifar þú það aftast:{CustomDate:Þingfestingardagur:dd.MM.yyyy}prentar „21.10.2026“.
Skyldureitir: settu stjörnu aftast í heitið, t.d. {CustomText:Tilvísun kröfuhafa*}. Þá er ekki hægt að búa bréfið til nema reiturinn sé fylltur út.
Að setja inn eigin reit
Í ritlinum smellir þú á „Bæta við breytu“ og velur „Eigin reitur...“ neðst.
Veldu tegund og skrifaðu heiti reitsins, t.d. „Tilvísun kröfuhafa“.
Hakaðu við „Skylt að fylla út“ ef reiturinn á að vera skyldureitur.
Smelltu á „Setja inn“.

Þú getur líka skrifað reitinn beint í textann. Ef þú vilt annað dagsetningarform en það sjálfgefna þarf að skrifa það beint.
Reglur um heiti
Heitið má ekki vera tómt og ekki lengra en 100 stafir.
Það má ekki innihalda { } : eða *, nema stjörnu aftast.
Sami reitur, þ.e. sama tegund og sama heiti, má koma fyrir oft í bréfinu, t.d. bæði í texta og undir undirskrift. Spurt er um hann einu sinni.
Hástafir og lágstafir skipta máli. „Tilvísun“ og „tilvísun“ eru tveir ólíkir reitir.
Í bréfaglugganum birtast textareitir og dagsetningar undir „Bréfið“ og langur texti undir „Texti“.
Reitir og fylgiskjöl
Veldu bréfið á flipanum „Bréfsniðmát“, smelltu á „Stillingar“ og veldu „Reitir og fylgiskjöl“. Smelltu á „Vista“ til að vista breytingarnar. Athugaðu að staðlað bréf verður „Sérsniðið“ þegar þessar stillingar eru vistaðar.

Það sem bréfaglugginn spyr um
Hér eru allir reitir sem bréfið spyr um. Merkið „Skylt“ þýðir að reiturinn verður að vera fylltur út. Fyrir hvern reit getur þú breytt:
Heiti: hvað reiturinn heitir í bréfaglugganum, t.d. „Stefna dagsett“ í stað „Dagsetning bréfs“.
Hjálpartexti: birtist undir reitnum í bréfaglugganum. Góður staður fyrir leiðbeiningar til lögmannsins.
Sjálfgefinn texti: fyrir textareiti. Reiturinn byrjar með þessum texta og lögmaðurinn getur breytt honum.
Sjálfgefin skjöl: fyrir „Framlögð skjöl“. Eitt skjal í hverri línu.
Reitir sem koma ekki fram í bréfinu
Með „Bæta við reit sem kemur ekki fram í bréfinu“ getur þú látið bréfagluggann spyrja um upplýsingar sem prentast ekki, t.d. dómstól eða eigin reit. Svarið er geymt með bréfinu. Slíkir reitir eru aldrei skyldureitir og þú getur fjarlægt þá með ruslafötunni.
Gjaldliðir
Ef bréfið bókar gjaldliði velur þú hér hverjir eru hakaðir við þegar bréfaglugginn opnast. Liðir sem ekki er hakað við bjóðast áfram, og lögmaðurinn hakar við þá þegar þeir eiga við, t.d. nauðungarsölugjald fyrir lausafé.
Fylgiskjöl
Fylgiskjöl eru búin til með bréfinu og bætt aftan við PDF skjalið.
Skrá yfir framlögð skjöl: sérstakt skjal með skuldurum og framlögðum skjölum.
Birtingarvottorð: eitt fyrir hvern skuldara sem bréfið nefnir, eða eitt fyrir viðtakanda bréfsins ef bréfið er stílað á viðtakanda.
Vegna birtingar á: textinn sem lýkur setningunni „Vegna birtingar á …“ á birtingarvottorðinu, t.d. „greiðsluáskorun“. Skrifaðu hann í réttu falli. Ef reiturinn er tómur er heiti bréfsins notað.
Was this helpful?
More in Bréfsniðmát
Hvernig virka bréfsniðmát?Still need help? Ask the team