Að breyta greiðanda á færslum
Hvernig þú setur færslur á annan greiðanda, t.d. eftir að greiðanda máls hefur verið breytt eða þegar fleiri en einn greiðandi er á máli
Written By Kjartan Valur Þórðarson
Last updated 19 days ago
Greiðandi er skráður á hverja færslu fyrir sig – tímaskráningu, fast gjald eða útlagðan kostnað. Þegar færsla er skráð fær hún sjálfkrafa greiðanda málsins, en þú getur hvenær sem er sett eina eða fleiri færslur á annan greiðanda. Hér er farið yfir hvernig það er gert.
Breyttirðu greiðanda málsins? Breyting á greiðanda máls hefur ekki áhrif á færslur sem þegar hafa verið skráðar – hún gildir aðeins um nýjar færslur. Ef eldri færslur eiga líka að fara á nýja greiðandann breytir þú þeim eins og lýst er hér að neðan. Sjá einnig Að breyta um greiðanda á máli.
Er hægt að hafa fleiri en einn greiðanda á máli?
Já. Þar sem greiðandinn fylgir hverri færslu getur hluti af færslum málsins verið á einum greiðanda og hluti á öðrum. Í reikningagerðinni skiptast færslurnar síðan í reikninga eftir greiðendum, þannig að hver greiðandi fær reikning fyrir sínar færslur. Til að setja færslur á annan greiðanda fylgir þú skrefunum hér að neðan.
Að breyta greiðanda á færslum
Skref 1: Birta dálkinn Greiðandi
Opnaðu málið og farðu í Málskostnaður. Athugaðu hvort dálkurinn Greiðandi sést í listanum. Ef ekki smellir þú á aðgerðarhnappinn hjá dálkunum, velur Dálkar og hakar í Greiðandi. Þá sérðu hvaða greiðandi er á hverri færslu.

Skref 2: Velja færslurnar
Hakaðu í reitina í fremsta dálknum við þær færslur sem eiga að fara á annan greiðanda og smelltu svo á Breyta.
Ráð: Veldu Nei í síunni Reikningsfært til að sjá aðeins færslur sem ekki hafa verið reikningsfærðar. Breyting á greiðanda færslu breytir ekki reikningi sem þegar hefur verið gefinn út.

Skref 3: Velja nýjan greiðanda
Ef þú valdir fleiri en eina færslu opnast glugginn Breyta mörgum í einu. Veldu réttan greiðanda í reitnum Greiðandi og smelltu á Staðfesta. Þeim svæðum sem þú skilur eftir auð er ekki breytt.

Ef þú valdir aðeins eina færslu opnast venjulegi skráningarglugginn. Þar smellir þú á Sýna öll svæði og velur nýjan greiðanda í reitnum Greiðandi.
Í reikningagerðinni
Þegar þú ferð í reikningagerð fyrir málið skiptast færslurnar á þá greiðendur sem eru skráðir á þær, og einn reikningur verður til fyrir hvern greiðanda.
Was this helpful?
More in Reikningagerð
Að gefa út reikningaAð undanskilja mál frá reikningagerðStill need help? Ask the team