Kostnaður og gjaldskrá
Áfallinn kostnaður, útlagður kostnaður, kostnaður kröfuhafa, VSK og gjaldskrá
Written By Kjartan Valur Þórðarson
Last updated 18 days ago
Kostnaður á innheimtukröfu skiptist í þrjár tegundir og hver þeirra hefur sitt spjald á síðu innheimtukröfunnar. Tegundin ræður því hver fær peningana á skilagrein og hvort virðisaukaskattur leggst á.
Tegundir kostnaðar
Áfallinn kostnaður: vinna lögmannsins sjálfs, t.d. innheimtuþóknun, innheimtubréf, greiðsluáskorun og beiðnir. Greiðist lögmanninum, með virðisaukaskatti ef hann á við.
Útlagður kostnaður: greiðslur til annarra vegna málsins, t.d. til ríkissjóðs, dómstóls eða stefnuvotts, á kvittun á nafni kröfuhafa. Lögmaðurinn fær hann endurgreiddan á skilagrein. Ef kvittunin er á nafni lögmannsstofunnar er kostnaðurinn skráður sem áfallinn kostnaður.
Kostnaður kröfuhafa: kostnaður sem kröfuhafinn bar sjálfur, t.d. milliinnheimtukostnaður áður en málið kom til lögmannsins. Hann greiðist kröfuhafa á skilagrein. Á hann leggst hvorki virðisaukaskattur né vextir.
Tegund kostnaðar breytist ekki eftir að hann er skráður. Ef rangt var valið eyðir þú kostnaðinum og skráir hann aftur.
Að skrá kostnað
Smelltu á „Stofna“ á spjaldi réttrar tegundar.
Veldu lið í „Fylla út skv. gjaldskrá“ ef hann er í gjaldskránni. Þá fyllast lýsing, upphæð og VSK út sjálfkrafa. Annars fyllir þú reitina út.
Smelltu á „Vista“.
Á útlögðum kostnaði skráir þú einnig kvittunarnúmer, hverjum var greitt („Greitt til“), greiðsludag, fjárhæð á kvittun með VSK og VSK á kvittun (enginn, 11% eða 24%).
Kostnaður sem bréf bókar þarf ekki að skrá sérstaklega. Hann bókast þegar bréfið er búið til, sjá greinina Að búa til bréf.
Virðisaukaskattur: hver greiðir?
Ef kröfuhafi er ekki á VSK-skrá greiðir skuldarinn virðisaukaskattinn ofan á kostnaðinn.
Ef kröfuhafi er á VSK-skrá greiðir skuldarinn kostnaðinn án VSK og virðisaukaskatturinn er dreginn frá hlut kröfuhafa á skilagrein.
Vergo les þetta úr reitnum „VSK-skrá (innheimta)“ á tengilið kröfuhafans. Hann fyllist út úr fyrirtækjaskrá þegar kennitala er slegin inn.
Ef ekki er vitað hvort kröfuhafi er á VSK-skrá ræður stilling í gjaldskránni (sjá hér að neðan).
Þú getur alltaf breytt þessu á einstökum kostnaði í reitnum „VSK greiðir“.
Viltu breyta VSK á mörgum liðum áfallins kostnaðar í einu? Hakaðu við þá á spjaldinu og smelltu á „Breyta VSK“.
Vextir af kostnaði
Sjálfgefið reiknast engir vextir af kostnaði. Ef þeir eiga við kveikir þú á „Reikna dráttarvexti frá gjalddaga“ á kostnaðinum. Kostnaður kröfuhafa ber aldrei vexti.
Innheimtuþóknun
Innheimtuþóknun er bókuð einu sinni á hverja innheimtukröfu, annaðhvort með fyrsta bréfi sem inniheldur hana eða með „Stofna“ á spjaldinu „Áfallinn kostnaður“. Hún er reiknuð af kröfunum eftir þrepum gjaldskrárinnar og uppfærist sjálfkrafa þegar kröfur, vextir eða innborganir breytast.
Ef þú smellir á blýantinn við þóknunina getur þú:
breytt grunngjaldi og þrepum fyrir þessa innheimtukröfu eina, án þess að breyta gjaldskránni,
valið hvort hún reiknast af höfuðstól eða höfuðstól og vöxtum,
sett fasta fjárhæð, t.d. ef þóknunin er umsamin eða dæmd.
Innborganir lækka ekki grunn þóknunarinnar, nema þær sem merktar eru „Lækkar grunn innheimtuþóknunar“, t.d. greiðsla áður en innheimta hófst.
Gjaldskráin
Gjaldskráin geymir þá liði sem stofan bókar á innheimtukröfur. Þú finnur hana í aðalvalmyndinni vinstra megin undir „Innheimta“ › „Stillingar“, á flipanum „Gjaldskrá“.
VSK þegar VSK-skráning kröfuhafa er óþekkt: rofinn „Skuldari greiðir VSK þegar VSK-skráning kröfuhafa er óþekkt“ ræður því hver greiðir virðisaukaskattinn þegar ekki er vitað hvort kröfuhafi er á VSK-skrá.
Innheimtuþóknun: grunngjald, þrep og hvort hún reiknast af höfuðstól eða höfuðstól og vöxtum. Ef þú slærð fjárhæð inn í reitinn „Prófa: grunnur“ sérðu hvað þóknunin verður af henni, án VSK. Breytingar ná aðeins til innheimtukrafna sem fá þóknunina eftir að þú vistar.
Liðir eftir innheimtustigi: Fruminnheimta, Milliinnheimta og Löginnheimta. Smelltu á „Stofna“ til að bæta við lið eða á blýantinn til að breyta lið. Ef stofan notar ekki lið slekkur þú á „Virkt“. Liðurinn sést þá áfram á gjaldskránni, þar sem má kveikja á honum aftur, en hann býðst ekki þegar kostnaður er skráður.
Hver liður hefur heiti, tegund (áfallinn eða útlagður kostnaður), innheimtustig og upphæð. Upphæðin getur verið föst eða farið eftir höfuðstól krafnanna í þrepum. Fyrir fast gjald getur þú hakað við „Innheimt fyrir hvern gerðarþola“. Þá bókast gjaldið einu sinni fyrir hvern gerðarþola sem bréfið nefnir, t.d. fjárnámsgjald.
Vergo leggur til sjálfgefna gjaldskrá. Þegar þú breytir lið úr henni verður hann merktur „Sérsniðið“. Með „Endurstilla á sjálfgefið“ fer liðurinn aftur í sjálfgefin gildi.
Hvaða liði hvert bréf bókar er stillt í bréfsniðmátinu, sjá greinina Hvernig virka bréfsniðmát?
Was this helpful?
More in Innheimta
Að stofna innheimtukröfuKröfur, vextir og vaxtatöflurAð búa til bréfSkilagreinarStill need help? Ask the team