Skip to main content
Innheimta

Kröfur, vextir og vaxtatöflur

Að skrá kröfur, tegundir vaxta, vaxtatöflur, dagatalning og uppgjörsdagur

Written By Kjartan Valur Þórðarson

Last updated 18 days ago

Á almennri innheimtukröfu skráir þú hverja kröfu fyrir sig, t.d. hvern reikning. Vergo reiknar vextina sjálft út frá vöxtum Seðlabanka Íslands. Á skuldabréfi verða kröfurnar til úr skilmálum bréfsins, sjá greinina Skuldabréf.

Að skrá kröfu

  1. Smelltu á „Stofna“ á spjaldinu „Kröfur“.

  2. Fylltu út reitina:

    • Lýsing: t.d. „Reikningur nr. 1234“.

    • Höfuðstóll: fjárhæð kröfunnar.

    • Gjalddagi: dagurinn sem vextir reiknast frá. Ef dráttarvextir eiga að reiknast frá eindaga skráir þú eindagann hér.

    • Tegund vaxta: sjá hér að neðan.

  3. Smelltu á „Vista kröfu“.

Til að breyta kröfu smellir þú á hana á spjaldinu „Kröfur“.

Tegundir vaxta

  • Dráttarvextir frá gjalddaga: algengast. Dráttarvextir skv. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 frá gjalddaga til greiðsludags.

  • Föst vaxtaprósenta frá gjalddaga: föst ársprósenta sem þú slærð inn.

  • Vextir frá gjalddaga skv. sérstakri vaxtatöflu: þegar tegund vaxta breytist á tímabilinu. Sjá „Vaxtatöflur“ hér að neðan.

  • Engir vextir: t.d. dæmdur málskostnaður.

Vextir eru lagðir við höfuðstól á 12 mánaða fresti, talið frá gjalddaga, sbr. 12. gr. laga nr. 38/2001. Það gerist sjálfkrafa.

Vaxtatöflur

Vaxtatafla er notuð þegar vextir kröfu eru ekki þeir sömu allan tímann, t.d. vextir skv. 8. gr. laga nr. 38/2001 fyrst og síðan dráttarvextir frá tilteknum degi, eins og oft er í dómsorðum.

Að búa til vaxtatöflu

  1. Smelltu á „Stofna“ á spjaldinu „Vaxtatöflur“, gefðu töflunni nafn og smelltu á „Vista“.

  2. Bættu við tímabilum með „Bæta við“. Fyrir hvert tímabil velur þú:

    • Upphafsdagsetning: „Frá upphafi“, þ.e. frá gjalddaga hverrar kröfu, eða tiltekinn dagur.

    • Lokadagsetning: „Fram að uppgjörsdegi“ eða tiltekinn dagur.

    • Tegund vaxta: „Dráttarvextir“, „Skaðabótavextir“ (8. gr. laga nr. 38/2001), „Óverðtryggðir útlánavextir“ (4. gr. laga nr. 38/2001) eða „Fastir vextir“ með prósentu.

  3. Á kröfunni velur þú „Vextir frá gjalddaga skv. sérstakri vaxtatöflu“ og töfluna.

Dæmi: dómsorð segir vexti skv. 8. gr. frá gjalddaga til 1. júní 2025 og dráttarvexti eftir það. Taflan fær tvö tímabil:

  1. Frá upphafi til 1. júní 2025: Skaðabótavextir.

  2. Frá 1. júní 2025 fram að uppgjörsdegi: Dráttarvextir.

Gott að vita um vaxtatöflur

  • Ein tafla getur þjónað mörgum kröfum. Hver krafa fer í gegnum töfluna frá sínum eigin gjalddaga. Ef þú breytir töflunni breytast vextir allra krafnanna sem nota hana.

  • Tímabil má ekki skarast. Ef bil er á milli tímabila reiknast engir vextir á bilinu.

  • Lokadagur tímabils er ekki talinn með, svo næsta tímabil getur byrjað sama dag og það fyrra endar.

  • Ekki er hægt að eyða vaxtatöflu sem krafa notar. Taktu hana fyrst af kröfunum.

  • Vaxtatöflur tilheyra einni innheimtukröfu og eru ekki sameiginlegar með öðrum.

Dagatalning

Dagatalningin ræður hvernig dagar eru taldir í vaxtaútreikningi. Hún er valin þegar innheimtukrafan er stofnuð og má breyta með „Breyta“ á „Grunnupplýsingar“. Í öllum tilvikum er árið talið 360 dagar.

  • 30E/360 (sjálfgefið): allir mánuðir eru taldir 30 dagar.

  • 30/360: eins og 30E/360, með smávægilegum mun þegar tímabil endar á 31. degi mánaðar.

  • Act/360: raunverulegur fjöldi daga.

Uppgjörsdagur

  • Til dagsins í dag (sjálfgefið): vextir reiknast til dagsins í dag. Innheimtukrafan er reiknuð upp á nýtt á hverri nóttu.

  • Festa dagsetningu: vextir reiknast aðeins til þess dags, t.d. þegar samið hefur verið um uppgjör.

Í bréfum reiknast vextir til dagsins í „Staða miðuð við“, eða til uppgjörsdags ef hann er fyrr.

Að skoða útreikninginn

Spjaldið „Vaxtaútreikningar“ neðst á síðunni sýnir hvernig vextir hverrar kröfu eru reiknaðir, tímabil fyrir tímabil. „Samtölur“ hægra megin sýnir stöðuna í heild og til hvaða dags hún er reiknuð.