Skip to main content
Innheimta

Skilagreinar

Uppgjör til kröfuhafa á því sem hefur verið innheimt

Written By Kjartan Valur Þórðarson

Last updated 18 days ago

Skilagrein er uppgjör til kröfuhafa: hvað skuldarinn hefur greitt, hvað fer til lögmannsins og hvað er skilað til kröfuhafa. Vergo reiknar hana út frá innborgunum og kostnaði innheimtukröfunnar.

Hlutaskilagrein og lokaskilagrein

  • Hlutaskilagrein: gerir upp innborganir sem hafa borist, en innheimtan heldur áfram.

  • Lokaskilagrein: síðasta uppgjörið. Hún segir annaðhvort að krafan sé greidd að fullu eða að eftirstöðvarnar séu felldar niður.

Athugaðu: lokaskilagrein breytir ekki stöðu innheimtukröfunnar og afskrifar ekkert í Vergo. Breyttu stöðunni í „Greitt“ eða „Afskrifað“ og skráðu afskrift ef þörf er á.

Svona gerir þú

  1. Smelltu á „Ný skilagrein“ á spjaldinu „Skilagreinar“.

  2. Veldu dagsetningu. Skilagreinin sýnir innheimtukröfuna eins og hún stóð þann dag. Dagsetningin má ekki vera fram í tímann.

  3. Veldu „Hlutaskilagrein“ eða „Lokaskilagrein“.

  4. Hakaðu við innborganirnar sem skilagreinin gerir upp, undir „Greiðslur til lögmanns“. Sjálfgefið er hakað við innborganir sem eru ekki á fyrri skilagrein.

  5. Farðu yfir „Ráðstöfun fjárins“ og „Uppgjör til kröfuhafa“.

  6. Smelltu á „Skoða PDF“ til að sjá skilagreinina.

  7. Smelltu á „Gefa út“.

Með „Breyta skilagrein“ getur þú breytt texta þessarar einu skilagreinar, t.d. bætt við athugasemd eða númeri reiknings. Fjárhæðunum í töflunum er ekki hægt að breyta því þær eru reiknaðar.

Hvernig er reiknað?

  • Til lögmanns: áfallinn kostnaður með VSK, og útlagður kostnaður sem lögmaðurinn fær endurgreiddan.

  • Til kröfuhafa: það sem eftir er, þ.m.t. kostnaður kröfuhafa.

  • Staðgreiðsla: 22% fjármagnstekjuskattur af vöxtunum sem voru greiddir er dreginn frá og greiddur í ríkissjóð.

  • Kröfuhafi á VSK-skrá: virðisaukaskattur af kostnaðinum er dreginn frá hlut kröfuhafa. Ef hlutur hans dugar ekki fyrir honum kemur fram hvað kröfuhafi greiðir lögmanni.

  • Fjárhæðir til lögmanns eru í heilum krónum og kröfuhafi fær það sem eftir stendur.

Innborganir sem eru merktar „Greitt beint til kröfuhafa“ og afskriftir fara ekki á skilagrein, því lögmaðurinn fékk enga peninga.

Ef ekki er hægt að gefa út

Vergo segir hvað er að. Algengast er:

  • Engin innborgun er valin í hlutaskilagrein.

  • Vísitala eða vextir Seðlabankans eru ekki komin fyrir dagsetninguna. Veldu þá fyrri dag.

Að skoða og fella niður

  • Smelltu á skilagreinina til að sjá hana. Þú sækir PDF skjalið með „Niðurhala“ í skjalaskoðaranum.

  • „Fella niður“ eyðir skjalinu. Innborganirnar á henni haldast óbreyttar og má setja á nýja skilagrein.

  • Ef innborgun er breytt eftir að skilagrein er gefin út breytist skilagreinin ekki.

Sniðmát skilagreina

Útlit skilagreina er stillt í aðalvalmyndinni undir „Innheimta“ › „Stillingar“, á flipanum „Skilagreinar“. Þeim er breytt á sama hátt og bréfsniðmátum, sjá greinina Hvernig virka bréfsniðmát?