Skip to main content
Innheimta

Skuldabréf

Skilmálar skuldabréfs, fyrstu vanskil og gjaldfelling

Written By Kjartan Valur Þórðarson

Last updated 19 days ago

Þegar innheimtukrafa er skuldabréf skráir þú ekki kröfurnar eina og eina. Þú skráir skilmála bréfsins og Vergo býr til eina kröfu fyrir hvern gjalddaga sem er í vanskilum. Vergo reiknar samningsvexti, verðbætur og vanskilavexti á hvern gjalddaga.

Að skrá skilmálana

  1. Stofnaðu innheimtukröfuna með „Stofna“ og „Stofna skuldabréf“. Sjá greinina Að stofna innheimtukröfu.

  2. Á síðu innheimtukröfunnar er spjaldið „Skuldabréf“. Smelltu á „Skrá skilmála“.

  3. Fylltu út reitina eftir bréfinu og smelltu á „Vista“.

Neðst í glugganum sérðu hve margir gjalddagar verða að kröfum, t.d. „12 gjalddagar alls. 6 þeirra, frá fyrstu vanskilum til dagsins í dag, verða kröfur málsins.“ Ef eitthvað vantar eða stenst ekki kemur þar fram hvað það er.

Reitirnir

Bréfið

  • Nafnverð: upphafleg fjárhæð bréfsins. Á verðtryggðu bréfi er það fjárhæðin án verðbóta.

  • Útgáfudagur: dagsetning bréfsins.

  • Þinglýsingardagur: kemur fram í bréfum en hefur ekki áhrif á útreikninga.

Afborganir

  • Fyrsti gjalddagi afborgana

  • Fjöldi afborgana: settu 1 ef höfuðstóllinn greiðist í einu lagi.

  • Mánuðir milli afborgana: 1 ef greitt er mánaðarlega, 3 ársfjórðungslega, 12 árlega.

  • Endurgreiðsla:

    • „Jafnar afborganir“: sama fjárhæð af höfuðstól á hverjum gjalddaga og vextir bætast ofan á.

    • „Jafnar greiðslur“: jafngreiðslulán (annuitet). Greiðslan er reiknuð upp á nýtt á hverjum gjalddaga út frá vöxtum tímabilsins, svo hún breytist ef vextirnir breytast.

    • „Fastar jafnar greiðslur“: greiðslan er alltaf sú sama. Þú getur slegið hana inn í „Greiðsla á gjalddaga“ ef hún kemur fram í bréfinu. Síðasti gjalddaginn tekur það sem eftir stendur.

Vextir

  • Samningsvextir: „Fastir vextir“ (slærð inn prósentu), „Dráttarvextir“, „Vaxtatafla“ eða engir. Til að velja vaxtatöflu þarf fyrst að búa hana til á spjaldinu „Vaxtatöflur“ á innheimtukröfunni.

  • Samningsvaxtadagur: dagurinn sem samningsvextir reiknast frá. Ef reiturinn er tómur er útgáfudagurinn notaður.

  • Vanskilavextir: vextir á hvern gjalddaga sem er ekki greiddur, frá gjalddaganum. Sjálfgefið eru það dráttarvextir.

  • Vextir greiðast á sömu gjalddögum: hakað við sjálfgefið. Ef vextir bréfsins eru greiddir á öðrum dögum en afborganir tekur þú hakið af og fyllir út fyrsta vaxtagjalddaga, fjölda vaxtagjalddaga og mánuði á milli.

Verðtrygging

  • Hakaðu við „Verðtryggt með vísitölu neysluverðs“ ef bréfið er verðtryggt.

  • Verðbætur reiknast frá: dagurinn sem grunnvísitalan miðast við. Ef reiturinn er tómur er útgáfudagurinn notaður. Notaðu hann t.d. ef lánið var greitt út á öðrum degi en útgáfudegi.

  • Grunnvísitalan birtist á spjaldinu „Skuldabréf“ eftir að skilmálarnir eru vistaðir. Berðu hana saman við bréfið.

Innheimta

  • Fyrstu vanskil: veldu fyrsta gjalddagann sem var ekki greiddur. Gjalddagar á undan honum teljast greiddir.

  • Greiðslur umfram gjaldfallið: hvað gerist ef skuldarinn greiðir meira en það sem er fallið í gjalddaga:

    • „Lækka greiðslubyrði“: greiðslurnar sem eftir eru lækka.

    • „Greiða næstu gjalddaga“: næstu gjalddagar greiðast fyrir fram.

    • „Stytta lánstíma“: síðustu afborganirnar greiðast fyrst og bréfið klárast fyrr.

  • Gjaldfelling, þrír kostir:

    • „Ekki gjaldfellt, nýjum gjalddögum bætt við“: nýr gjalddagi bætist við innheimtukröfuna þegar hann fellur í gjalddaga.

    • „Ekki gjaldfellt, gjalddagar til og með tilteknum degi“: aðeins gjalddagar til og með deginum sem þú velur eru innheimtir.

    • „Gjaldfellt“: allt bréfið fellur í gjalddaga á gjaldfellingardegi.

Kröfurnar sem verða til

  • Ein krafa verður til fyrir hvern gjalddaga frá fyrstu vanskilum til dagsins í dag, eða til uppgjörsdags ef hann er festur. Kröfurnar heita t.d. „Gjalddagi 3 af 120“.

  • Hver krafa er afborgunin ásamt samningsvöxtum og verðbótum gjalddagans. Vanskilavextir reiknast af allri fjárhæðinni.

  • Nýir gjalddagar bætast við sjálfkrafa þegar þeir falla í gjalddaga.

  • Ef bréfið er gjaldfellt bætist við ein krafa á gjaldfellingardegi, „Eftirstöðvar við gjaldfellingu“. Hún er höfuðstóllinn sem eftir stendur ásamt samningsvöxtum frá síðasta vaxtagjalddaga. Gjaldfellingardagur fram í tímann bætir engu við fyrr en dagurinn kemur.

  • Gjalddagarnir sjást í töflunni „Gjalddagar í innheimtu“ á spjaldinu „Skuldabréf“.

Ekki er hægt að bæta kröfum við skuldabréf handvirkt. Ef kröfurnar eru ekki réttar breytir þú skilmálunum.

Að breyta skilmálum

Smelltu á „Breyta skilmálum“ á spjaldinu „Skuldabréf“. Kröfurnar eru þá búnar til upp á nýtt eftir nýju skilmálunum.

  • Bréf og dómskjöl sem þegar hafa verið útbúin breytast ekki.

  • Bókaður kostnaður breytist ekki, nema innheimtuþóknun sem reiknast upp á nýtt.

  • Ef innborgun var ráðstafað á tiltekinn gjalddaga og sá gjalddagi hverfur fellur reglan niður. Vergo sýnir þá hvaða innborganir það á við svo þú getir farið yfir þær.

Ef ekki tekst að reikna

Vextir Seðlabankans og vísitala neysluverðs eru birt eftir á. Ef gjalddagi eða uppgjörsdagur er kominn fram yfir það sem er birt sýnir Vergo skilaboð um að ekki hafi tekist að reikna innheimtukröfuna og fjárhæðirnar eru þá frá síðasta útreikningi. Þetta lagast sjálfkrafa þegar tölurnar eru birtar.