Skip to main content
Innheimta

Að búa til bréf

Innheimtubréf, greiðsluáskoranir, stefnur og önnur bréf úr innheimtukröfu

Written By Kjartan Valur Þórðarson

Last updated 19 days ago

Bréf eru búin til á síðu innheimtukröfunnar, á spjaldinu „Bréf“. Vergo fyllir bréfsniðmátið út með upplýsingum innheimtukröfunnar, bókar kostnað bréfsins og geymir bréfið sem PDF.

Svona gerir þú

  1. Smelltu á „Stofna“ á spjaldinu „Bréf“ og veldu bréf. Bréfin eru flokkuð eftir innheimtustigi.

  2. Athugaðu „Staða miðuð við“ efst í glugganum og fylltu út reitina.

  3. Hakaðu við kostnaðinn sem bréfið á að bóka undir „Bóka kostnað“.

  4. Smelltu á „Forskoða bréf“ til að sjá bréfið áður en það er búið til.

  5. Smelltu á „Búa til“.

Hvaða bréf bjóðast?

  • Eftir innheimtustigi: á fruminnheimtu bjóðast bréf fruminnheimtu, á milliinnheimtu bréf fruminnheimtu og milliinnheimtu, og á löginnheimtu öll bréf.

  • Eftir tegund: á skuldabréfi bjóðast bréf sem eru ætluð skuldabréfum eða öllum kröfum. Á almennri kröfu bjóðast bréf sem eru ætluð kröfum án skuldabréfs eða öllum kröfum.

Ef bréf sem þú átt von á birtist ekki skaltu athuga innheimtustig innheimtukröfunnar og „Notað fyrir“ í stillingum bréfsins.

Staða miðuð við

Allar fjárhæðir í bréfinu miðast við þennan dag. Vextir reiknast til hans, og aðeins kröfur, kostnaður og innborganir til og með honum eru teknar með. Kostnaðurinn sem bréfið bókar er alltaf með.

Sjálfgefið fylgir dagurinn „Dagsetning bréfs“. Þú getur valið annan dag, t.d. úrskurðardag í kröfulýsingu í þrotabú. Ef þú hreinsar reitinn fylgir hann aftur dagsetningu bréfsins.

Reitirnir

Glugginn spyr aðeins um það sem bréfið þarf. Reitirnir eru flokkaðir í „Bréfið“, „Aðilar“, „Dómur og embætti“, „Texti“ og „Skjöl“. Skyldureitir eru merktir með *, og ekki er hægt að smella á „Búa til“ fyrr en þeir eru fylltir út.

  • Viðtakandi: sá sem bréfið er stílað á. Velja má hvern sem er af aðilum innheimtukröfunnar nema kröfuhafa, t.d. ábyrgðarmann. Aðalskuldarinn er sjálfgefinn.

  • Skuldarar: skuldararnir sem bréfið nefnir, t.d. í stefnu. Aðalskuldarinn er alltaf með.

  • Gerðarþolar: þeir sem bréfið nefnir sem gerðarþola, t.d. í nauðungarsölubeiðni.

  • Lögmaður: veldu af listanum. Með „+“ getur þú bætt nýjum lögmanni við listann.

  • Framlögð skjöl: listi yfir skjölin. Skrifaðu heiti skjals og smelltu á „Bæta við skjali“. Þú getur fært skjöl upp og niður og fjarlægt þau.

Reitirnir „Viðtakandi“, „Skuldarar“ og „Gerðarþolar“ birtast aðeins ef fleiri en einn aðili kemur til greina.

Kostnaður bréfsins

Undir „Bóka kostnað“ er ein lína fyrir hvern gjaldlið sem bréfið bókar, með gjalddaga og fjárhæð.

  • Fjárhæðin er það sem skuldarinn greiðir, með VSK ef skuldarinn greiðir hann.

  • Taktu hakið af ef liðurinn á ekki að bókast. Sumir liðir eru sjálfgefið án haks og þú hakar við þá þegar þeir eiga við, t.d. nauðungarsölugjald fyrir lausafé.

  • Innheimtuþóknun bókast aðeins einu sinni á hverja innheimtukröfu. Ef hún er þegar bókuð stendur „Þegar bókuð, uppfærist sjálfkrafa“.

  • Gjald sem er innheimt fyrir hvern gerðarþola, t.d. fjárnámsgjald, margfaldast með fjölda skuldaranna sem eru valdir.

Kostnaðurinn birtist á kostnaðarspjöldum innheimtukröfunnar eftir að bréfið er búið til. Þar má breyta honum, t.d. VSK.

Að breyta texta eins bréfs

Með „Breyta bréfi“ getur þú breytt texta þessa eina bréfs, t.d. bætt við setningu. Sniðmátið sjálft breytist ekki. Bréf sem hefur verið breytt er merkt „Breytt“ á spjaldinu „Bréf“.

Þegar bréfið er búið til

  • Kostnaður bréfsins er bókaður á innheimtukröfuna.

  • Bréfið er geymt sem PDF á spjaldinu „Bréf“.

  • Fylgiskjöl, t.d. skrá yfir framlögð skjöl og birtingarvottorð, eru sett aftan við bréfið. Þau má einnig skoða hvert fyrir sig.

  • Bréfið er skráð í „Tímalína“.

Fresturinn í bréfinu er aðeins texti. Vergo býr ekki til verkefni eða áminningu þegar hann rennur út, og staða og innheimtustig innheimtukröfunnar breytast ekki.

Að skoða, sækja og eyða bréfi

  • Smelltu á bréfið, eða „Skoða“, til að sjá það og upplýsingarnar sem það var búið til með. Þú sækir PDF skjalið með „Niðurhala“ í skjalaskoðaranum.

  • „Eyða“ eyðir bréfinu og skjölum þess. Kostnaðurinn sem bréfið bókaði helst á innheimtukröfunni. Ef hann á líka að fara eyðir þú honum á kostnaðarspjaldinu.