Skip to main content
Reikningagerð

Að breyta um greiðanda á máli

Hvernig þú breytir greiðanda á einu eða mörgum málum – og hvað verður um færslur sem þegar eru skráðar

Written By Kjartan Valur Þórðarson

Last updated 19 days ago

Greiðandi máls er sá aðili sem reikningar málsins eru gefnir út á. Þegar ný færsla (tímaskráning, fast gjald eða útlagður kostnaður) er skráð á málið fær hún sjálfkrafa greiðanda málsins. Ef enginn greiðandi er valinn er aðal viðskiptavinur málsins notaður („Sami og aðal viðskiptavinur“).

⚠️ Mikilvægt: Breyting á greiðanda máls hefur ekki áhrif á færslur sem þegar hafa verið skráðar.

Nýi greiðandinn gildir aðeins um færslur sem skráðar eru eftir breytinguna. Færslur sem voru skráðar áður halda gamla greiðandanum og fara á reikning hans í reikningagerðinni. Ef þær eiga líka að fara á nýja greiðandann þarftu að breyta þeim sérstaklega – sjá Að breyta greiðanda á færslum.

Að breyta greiðanda á einu máli

  1. Opnaðu málið.

  2. Smelltu á Aðgerðir efst til hægri og veldu Breyta.

  3. Farðu í skrefið Tengiliðir.

  4. Veldu nýjan greiðanda í reitnum Greiðandi. Ef tengiliðurinn er ekki til getur þú stofnað hann með plúsnum við hliðina á reitnum. Veldu „Sami og aðal viðskiptavinur“ ef reikningar eiga að fara á aðal viðskiptavin málsins.

  5. Smelltu á Staðfesta.

Að breyta greiðanda á mörgum málum í einu

  1. Farðu í Mál í valmyndinni.

  2. Hakaðu við þau mál sem á að breyta og smelltu á Breyta. Glugginn Breyta mörgum í einu opnast.

  3. Kveiktu á rofanum við Greiðandi og veldu nýjan greiðanda. Ef reiturinn er hafður tómur verður „Sami og aðal viðskiptavinur“ notaður.

  4. Vistaðu breytinguna.

Aðeins þeim svæðum sem kveikt er á rofanum við er breytt – annað á málunum helst óbreytt.

Á líka að færa þegar skráðar færslur á nýja greiðandann?

Ef tímar eða kostnaður sem þegar hefur verið skráður á málið, en ekki reikningsfærður, á líka að fara á nýja greiðandann breytir þú greiðandanum á þeim færslum í Málskostnaður á málinu. Þar getur þú valið margar færslur í einu og breytt greiðanda þeirra allra í einu skrefi. Skref fyrir skref leiðbeiningar eru í greininni Að breyta greiðanda á færslum.

Ráð: Best er að breyta fyrst greiðanda málsins og færa svo óreikningsfærðar færslur á nýja greiðandann. Þá fara bæði eldri og nýjar færslur á réttan greiðanda.